fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Flugvöllurinn verði færður í Hvassahraun fyrir 44 milljarða

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 28. nóvember 2019 18:39

Stýrihópurinn við kynningu á skýrslu um flugvallakosti á suðvesturhorninu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og borgarstjóri Reykjavíkur hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að hrinda í framkvæmd verkefnum og nauðsynlegum rannsóknum í samræmi við tillögur í skýrslu stýrihóps um framtíðarskipan flugvallarmála á suðvesturhorni landsins.

Samkomulagið felur í sér að ríki og borg hefji samstarf um rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni með það að markmiði að fullkanna kosti á því að reisa og reka þar flugvöll til að gegna hlutverki varaflugvallar, innanlandsflugvallar og flugvallar fyrir æfinga-, kennslu- og einkaflug.

Ef rannsóknir gefa tilefni til að halda áfram undirbúningi flugvallar í Hvassahrauni er stefnt að því að taka ákvörðun hvort af byggingu flugvallarins verði fyrir lok árs 2024.

Rekstraröryggi í Vatnsmýri tryggt
Í samkomulaginu eru aðilar sammála um að tryggja rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli á meðan undirbúningi og gerð nýs flugvallar stendur, þar með talið eðlilegt viðhald og endurnýjun mannvirkja í samræmi við ákvæði gildandi samgönguáætlunar Alþingis. Í samkomulaginu er miðað við að Reykjavíkurflugvöllur geti áfram þjónað innanlandsflugi á fullnægjandi hátt þar til að nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar. Þá lýsir Reykjavíkurborg jafnframt yfir vilja sínum til þess að tryggja nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra:
„Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samkomulagi við borgina um að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýri þar til annar jafngóður eða betri kostur verður tilbúinn. Það skapar öryggi fyrir innanlandsflugið og heldur þeirri góðu tengingu sem verður að vera milli landsbyggðar og höfuðborgar. Það er einnig ljóst að Suðurnesin verða áfram miðpunktur millilandaflugs á Íslandi og uppbyggingarsvæði fyrir þá mikilvægu starfsemi sem flugið er fyrir Íslendinga,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri:
„Það hefur verið mikill styrkur að því að allir lykilhagsmunaaðilar hafa átt sæti í nefndinni og komið að málinu. Óopinbert markmið nefndarinnar var að vera síðasta nefndin um flugvallarmálið. Ég bind miklar vonir við að það hafi tekist. Nú er kominn grundvöllur til að taka skýra stefnu í málinu og hefja rannsóknir á nýju flugvallarstæði í Hvassahrauni.“
Samkomulagið gerir ráð fyrir að skipa starfshóp sem ber ábyrgð á nánari útfærslu verkefnisins með fulltrúum ríkis, borgar og sveitarfélögum á Suðurnesjum. Starfshópurinn hefur umsjón með greiningarvinnu í samræmi við tillögur skýrslu starfshópsins ásamt nauðsynlegum veðurmælingum.

Skýrsla stýrihóps um flugvallakosti
Stýrihópurinn, sem var skipaður vorið 2018 til að greina framtíðarskipan flugvallamála á suðvesturhorninu, hefur skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Hópnum var falið að kostnaðargreina helstu valkosti sem hafa komið til greina en það eru flugvellir í Vatnsmýri og í Keflavík og mögulegur nýr flugvöllur í Hvassahrauni. Í skýrslunni eru lagðar fram fimm tillögur sem er ætlað að auðvelda umræðu og styðja við ákvarðanatöku um uppbyggingu þeirrar þjónustu sem stjórnvöld vilja stuðla að fyrir innanlands- og millilandaflug.

Meginforsenda í vinnu stýrihópsins var að tveir flugvellir yrðu á suðvesturhorni landsins þannig að þar verði varaflugvöllur fyrir millilanda- og innanlandsflug líkt og verið hefur um áratuga skeið. Hópurinn kynnir í skýrslunni niðurstöður kostnaðargreiningar og leggur fram fimm megintillögur.

  1. Millilandaflug áfram í Keflavík. Haldið verði áfram að byggja upp miðstöð millilandaflugs í Keflavík í samræmi við fyrri áætlanir. Kostnaðarmunur er afgerandi milli kosta þar sem kostnaður við nýjan millilandaflugvöll í Hvassahrauni er áætlaður rúmlega 300 milljarðar kr. en kostnaður við áframhaldandi uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli rúmir 160 milljarðar kr. Ef ráðist yrði í nýjan flugvöll í Hvassahrauni þyrfti engu að síður samhliða að halda áfram einhverri uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.
  2. Hvassahraun komi áfram til greina. Einnig er lagt er til að gerðar verði ráðstafanir til að halda opnum möguleikanum á flugvelli í Hvassahrauni. Áætlað er að fullbúinn innanlands- og varaflugvöllur í Hvassahrauni, sem jafnframt þjónaði sem kennslu- og einkaflugvöllur, kosti um 44 milljarða kr. en kostnaður við nauðsynlega uppbyggingu í Vatnsmýrinni er um 25 milljarðar kr. Frekari þróun flugvallar í Vatnsmýri er erfið vegna byggðar sem þrengt hefur að starfseminni.  Þær greiningar sem til eru benda til að flutningur innanlandsflugs úr Vatnsmýri til Keflavíkur sé ekki vænlegur kostur við núverandi aðstæður en lagt er til að greind verði áhrif þess að flytja miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýri í Hvassahraun.
  3. Ákvörðun tekin eftir veðurmælingar. Áður en hægt er að taka endanlega ákvörðun um fýsileika þess að byggja flugvöll í Hvassahrauni þarf að ljúka við flugprófanir og veðurmælingar sem taka a.m.k. tvö ár og mögulega lengri tíma.
  4. Greiningarvinna samhliða veðurmælingum. Lagt er til að samhliða veðurmælingum verði tíminn nýttur til að:
    • Greina möguleika og kostnað við greiðar og fljótvirkar samgöngur milli miðbæjar Reykjavíkur og Hvassahrauns og milli Hvassahrauns og Keflavíkur.
    • Greina áhrif af færslu innanlandsflugs úr Vatnsmýri í Hvassahraun.
    • Greina mögulegar staðsetningar á flugvelli fyrir kennslu-, æfinga- og einkaflug með það í huga hvar slíkum flugvelli væri best fyrir komið, hvað hann kostaði og hve mikil samlegð fengist með alhliða innanlandsflugvelli.
    • Greina nothæfisstuðla allra millilandaflugvalla og kerfisins í heild, setja viðmið um það og byggja kröfur til varaflugvallar á því.
    • Samgönguyfirvöld hefji viðræður við Reykjavíkurborg, sveitarfélögin á Suðurnesjum og aðra hlutaðeigandi aðila um hugsanlega færslu á flugvallastarfsemi úr Vatnsmýri í Hvassahraun, auk þess sem tryggja þarf áframhaldandi rekstur og umbætur flugvallarins í Vatnsmýri uns niðurstaða ofangreindra aðila liggur fyrir.
  5. Egilsstaðaflugvöllur endurbættur sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Lagt er til að Egilsstaðaflugvöllur verði endurbættur sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug um Ísland með það að markmiði að koma megi allt að 15 fleiri vélum fyrir á flugvellinum með því að gerð verði akstursbraut með fram flugbrautinni.

Skipan stýrihóps
Í stýrihópnum sátu eftirtaldir: Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræðingur, sem jafnframt var formaður hópsins, Elín Árnadóttir frá Isavia, Birna Ósk Einarsdóttir frá Icelandair Group, Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri Reiknistofu bankanna (við skipun hjá WOW air), Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar.
Með stýrihópnum störfuðu Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Gunnar Örn Indriðason, lögfræðingur hjá ráðuneytinu og Friðfinnur Skaftason, verkfræðingur hjá ráðuneytinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins