fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
Eyjan

Morgunblaðið hæðist að borgarstjóra –„Þetta er alger draumatillaga“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. nóvember 2019 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staksteinahöfundur Morgunblaðsins fjallar um stefnu borgaryfirvalda í húsnæðismálum og tillögu Dags B. Eggertssonar um að bankarnir endurmeti greiðslumat sitt vegna íbúðarlána, en borgaryfirvöld hafa tilkynnt um 2000 nýjar íbúðir á næsta ári og alls séu um 4200 íbúðir á framkvæmdastigi:

„Stefna borgaryfirvalda í skipulags- og húsnæðismálum hefur í megindráttum verið sú að auka við byggingar á dýrum svæðum en draga úr byggingum annars staðar. Þetta stafar af því að núverandi borgaryfirvöld telja að megintilgangur starfa þeirra sé að þétta byggð og þá verði annað að víkja. Óhjákvæmileg afleiðing þessarar einstrengingslegu stefnu hefur verið ört hækkandi íbúðaverð og offramboð af dýrum íbúðum í miðbænum og nágrenni en skortur á hagstæðum íbúðum austar í borginni. Þetta hefur valdið mörgum erfiðleikum við að finna húsnæði sem hæfir kaupgetunni, en þeir geta tekið gleði sína á ný því að borgarstjóri er búinn að finna lausnina á þessum heimatilbúna vanda,“

segir Staksteinhöfundur og má greina nokkra kaldhæðni í skrifunum.

 „Í samtali við Morgunblaðið um helgina lýsti hann þeirri skoðun sinni að bankarnir ættu að breyta greiðslumati sínu til að gera fólki kleift að kaupa dýru íbúðirnar sem hann hefur lagt ofuráherslu á að séu byggðar í borginni. Borgarstjóri segir að með því að kaupa vel staðsettar íbúðir geti fólk sparað eldsneytiskaup og önnur útgjöld vegna bifreiðar og ætti þannig að geta keypt dýrara húsnæði, bara ef að bankarnir hækkuðu greiðslumatið og lánin. Þetta hlýtur að vera notaleg tilhugsun fyrir unga fólkið sem er að spara fyrir fyrstu íbúð. Verði Degi að ósk sinni getur það sleppt bílnum og borgað í staðinn meira til bankanna. Þetta er alger draumatillaga.“

Dagur sagði einnig við Morgunblaðið að hann hefði ekki áhyggjur af sölu íbúða á miðborgarsvæðinu, þar sem það svæði væri mjög eftirsótt og framboðið færi minnkandi þegar til framtíðar væri litið, þegar miðborgin yrði fullbyggð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Reiði skólameistarinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Fylgi Miðflokks eykst enn – Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%

Miðflokkurinn kominn í tæp 20%