fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Reykjavíkurborg leggur niður skólahald í Korpuskóla – „Skólahald breytist í norðanverðum Grafarvogi“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 18:45

Korpuskóli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem kunnugt er þá eru íbúar í Grafarvogi margir æfir vegna þess að Reykjavíkurborg hefur um nokkra hríð haft í hyggju að leggja niður skólahald í Korpuskóla þar sem nemendur þykja of fáir til að réttlæta rekstur hans.

Reykjavíkurborg tilkynnti um það í dag að skólahald þar yrði lagt niður þar til nemendur yrðu minnst 150, en þeir eru nú aðeins 59 talsins, en skólabyggingin gerir ráð fyrir allt að 170 nemendum. Ráðgert er að það verði nýtt fyrir frístundastarf og er leitað eftir sjálfstætt starfandi aðilum fyrir slíkan rekstur.

Ekki það eina í stöðunni

Hefur Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnt þessa fyrirætlan undanfarnar vikur, en hann segir í dag:

„Í stað þess að leggja til at­lögu við skólastarf í Grafar­vogi ráðlegg ég meiri­hlut­an­um að sýna sóma sinn í því að draga þessa til­lög­ur sín­ar til baka og finna far­sæla lausn í sátt og sam­lyndi við íbúa og starfs­fólk.“

Þá segir hann það skjóta skökku við að ákvörðunin um lokunina hafi verið tekin áður en fundur var haldinn í skóla- og frístundarráði:

„Ekki síst vegna þess að einmitt í sama dag og fundurinn er haldinn, þriðjudaginn 12. nóvember, rennur út umsagnarfrestur foreldraráða og skólaráða.“

Hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt til samrekstur leik- og grunnskóla í húsinu og fjölgun árganga. Einnig að heimiluð verði uppbygging í Staðarhverfi, til að tryggja nægilegan nemendafjölda.

Ekki kemur fram í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg að fulltrúar minnihlutans í ráðinu, sem allir eru frá Sjálfstæðisflokknum, kusu allir gegn tillögunni.

Tilkynning Reykjavíkurborgar er eftirfarandi:

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að frá og með hausti 2020 verði þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. Borgaskóli og Engjaskóli verði fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli verði sameinaður unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10 bekk. Gert er ráð fyrir að hver skóli rúmi á þriðja hundrað nemendur. Í Víkurskóla verður lögð áhersla á hugmyndafræði nýsköpunar, frumkvöðlafræði og skapandi hugsun í öllum starfsháttum. Nýsköpun í skóla- og frístundastarfi felur jafnframt í sér áherslu lýðræðisleg vinnubrögð, teymisvinnu og lausnamiðað nám.

Tillagan felur í sér að skólahald verður aflagt í Korpuskóla þar til börnum í Staðahverfi á aldrinum 6-12 ára hefur fjölgað í 150 og verður þá ákvörðun um skólahald í hverfinu endurskoðuð í samstarfi við foreldra og íbúa. 59 nemendur eru nú í Korpuskóla og hefur fækkað úr 140 nemendum árið 2012 en skólinn er byggður fyrir 170 nemendur.

Lagt er til að innleiðingarhópar verði skipaðir til að tryggja markvisst og farsælt breytingaferli og verði skipan þeirra afgreidd á fundi ráðsins 10. desember næstkomandi. Í greinargerð með tillögunni er lagt til að skipaður verði einn hópur fyrir hvern skóla og það frístundaheimili eða félagsmiðstöð sem honum er næst, og einn yfirhópur sem tryggi að samfella skapist í skipulagi skólahalds, frístundastarfs og samgöngumála.

Tillagan felur í sér að tryggðar verði samgöngubætur til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og til að tengja betur öll hverfi í norðanverðum Grafarvogi. Göngu- og hjólaleiðir verði bættar til að gera skóla-, frístunda- og íþróttastarf aðgengilegra fyrir íbúa í öllum norðanverðum Grafarvogi.  Undirgöng eða ámóta örugg göngu- og hjólaleið verði sett við Strandveg/Víkurveg á milli Garðsstaða og Breiðavíkur. Sett verði upp gönguljós og þrenging götu við Mosaveg. Unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir.

Í tillögunni kemur fram vilji meirihluta skóla- og frístundaráðs til að skólahúsnæðið í Korpu nýtist áfram í skóla- og frístundastarfi þannig að foreldrar hafi val um skóla- og frístundaúrræði fyrir börn sín. Í því sambandi verði m.a. leitað eftir áhuga sjálfstætt starfandi skóla.

Á fundi skóla- og frístundaráðs var lagt fram álit borgarlögmanns um að ekki sé nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi áður eða samhliða því að skólahaldi verði hætt í Korpuskóla. Að hans mati er með hliðsjón af fyrirhuguðum úrbótum á samgöngum milli hverfa ekki fyrir hendi skaðabótaábyrgð af hálfu borgaryfirvalda gagnvart íbúum Staðahverfis.

Sjá nánar í greinargerð með tillögunni. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“