fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
Eyjan

Biskup hefur ekki áhyggjur af fækkun í þjóðkirkjunni

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 4. október 2019 09:28

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og Eyjan greindi frá í gær hefur meðlimum Þjóðkirkjunnar fækkað um 988 manns það sem af er á þessu ári. Það jafngildir því að þrír segi sig úr henni á degi hverjum.  Hlutfall landsmanna í Þjóðkirkjunni hefur aldrei verið lægra en um þessar mundir.

Frá árinu 2009 hefur meðlimum þjóðkirkjunnar fækkað um rúmlega 20 þúsund manns, en á meðan hefur verið hröð fjölgun landsmanna, alls 36 þúsund manns, sem virðist ekki skila sér til þjóðkirkjunnar. Alls voru 92,2 prósent landsmanna í þjóðkirkjunni árið 1992 en hlutfallið nú er um 65%.

Engar áhyggjur

Morgunblaðið hefur eftir samskiptastjóra Biskupsstofu í dag, að Agnes M. Sigurðardóttur biskup, hafi ekki áhyggjur af þessari þróun, henni væri fyrst og fremst umhugað um „einlægt, andlegt trúarlíf almennings, velferð og sálgæslu sem hverjum og einum einstaklingi væri mikilvægust.“

42 milljarðar á 20 árum

Þjóðkirkjan er á fjárlögum og fékk um 5,5 milljarða króna frá skattborgurum landsins árið 2018. Þá munu framlög ríkisins til þjóðkirkjunnar aukast um 857 milljónir á næsta ári samkvæmt fjárlögum.

Í stjórnarskrá nýtur þjóðkirkjan stuðnings og verndunar ríkisvaldsins umfram önnur trúfélög. Þá er enn í gildi kirkjujarðarsamkomulagið frá 1997 sem fól í sér að ríkið tók yfir um 600 kirkjujarðir, gegn því að greiða laun presta og starfsmanna Biskupsstofu.

Frá því að samkomulagið tók gildi, árið 1998, hefur ríkið greitt þjóðkirkjunni samtals 42 milljarða króna, þar af eru um 40 milljarðar laun til presta, eða um tveir milljarðar á ári.

Fjöldi presta hér á landi telja um 140 manns.

Þá hefur meirihluti almennings kallað eftir aðskilnaði ríkis og kirkju nánast samfleytt frá árinu 1993, í könnunum þess efnis. Í október 2018 voru 54 prósent Íslendinga hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.

Í sömu könnun kom fram að þriðjungur þjóðarinnar bæri mikið traust til þjóðkirkjunnar, sem var fækkun um tíu prósentustig milli ára. Alls 39 prósent sögðust bera lítið traust til þjóðkirkjunnar.

Ánægjan með störf biskups hefur aldrei verið minni samkvæmt sömu könnun. Aðeins 14 prósent sögðust ánægð með störf biskups, en 44 prósent sögðust óánægð.

Sjá nánar: Ríkið hefur greitt kirkjunni 42 milljarða á 20 árum fyrir kirkjujarðir – „Ómögulegt“ að vita verðmætið

Sjá nánar: Hlutfall landsmanna í þjóðkirkjunni aldrei lægra en nú – Prestar þegið 40 milljarða í laun síðan 1998

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala

Orðið á götunni: Til hamingju – Eins árs afmæli og verkin tala
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur

Nína Richter skrifar: Fjöldaframleiddar jólaklisjur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG