Rausnarlegur samningur Seðlabankans til Ingibjargar Guðbjartsdóttur kom bæði fyrrverandi og núverandi formanni bankaráðs Seðlabankans í opna skjöldu. Þetta kemur fram í umfjöllun á RÚV. Þórunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, segist fyrst hafa séð samninginn í gær. Gylfi Magnússon, núverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, segir samninginn vera sérstakan gjörning.
Ingibjörg fékk 8 milljóna króna styrk frá bankanum til MPA náms við Harvard-háskóla í Boston. Einnig fékk hún greidd 60 prósent af launum á meðan náminu stóð. Þessar upplýsingar birti Seðlabankinn eftir að hafa tapað dómsmáli gegn blaðamanni Fréttablaðsins, Ara Brynjólfssyni. Úrskurðarnefnd upplýsingamála hafði úrskurðað að bankanum bæri að láta þessar upplýsingar af hendi til blaðamannsins en Seðlabankinn stefndi þá blaðamanninum fyrir Héraðsdóm til að fá þeim úrskurði hnekkt. Seðlabankinn tapaði málinu fyrir héraðsdómi.
„Óneitanlega er þetta sérstakur gjörningur. Þetta er auðvitað bæði mjög há upphæð og frekar óvenjulega að þessu staðið,“ segir Gylfi Magnússon í viðtali við RÚV. Hann segist álykta að bankinn hafi gert þennan samning við Ingibjörgu til að halda henni í starfi hjá bankanum. Segist Gylfi ekki telja að aðrir viðlíka samningar hafi verið gerðir hjá Seðlabankanum.