fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Eyjan

Sósíalistar leggjast gegn veggjöldum og vilja endurreisa skattkerfið – „Þeir borgi sem geta“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. september 2019 18:30

Sanna Magdalena og Daníel Örn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarstjórnarflokkur Sósíalista leggt alfarið gegn áformum stjórnvalda um veggjöld. Þau Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands og Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi, segja gjöldin leggjast þyngst á þá efnaminni:

„Núna á að leggja flýti- og umferðargjöld á stofnbrautir sem leggjast þyngst á fólkið sem þarf að sækja vinnu miðsvæðis og býr í úthverfum borgarinnar. Þessi gjöld eru auðvitað líka hlutfallslega miklu hærri fyrir þá efnaminni og þá er hætt við að við séum að fara að búa til enn annan hlut sem aðgreinir hinar ólíku stéttir. Annars vegar verður fólk sem hefur efni á því að reka bíl og svo hinsvegar fólkið sem neyðist til að taka strætó. Við ættum auðvitað að gera strætó að góðum og raunhæfum kosti sem er fullfær að laða að sér farþega en ekki neyða efnaminna fólk til að nota hann sökum efnahags.“

Skattbyrðin færð á þá fátækari

Segja þau Sanna og Daníel að notast eigi við það sem þegar fellur til í ríkissjóð til að standa að samgöngubótum og að húsnæðiskerfið hafi neytt fátækara fólk til að flytja frá miðborginni, en það sé fólkið sem verða verst úti ef til veggjalda komi:

„Sameiginlegir sjóðir okkar; skattarnir, eiga að borga samgönguuppbyggingu, sem og aðra nauðsynlega innviðauppbyggingu. Skattbyrðin hefur verið færð af hinum ríku og fyrirtækjunum yfir á herðar láglaunafólks og þegar við skattleggjum ekki þá sem eru aflögufærir vantar stóran hluta í sameiginlegu sjóði okkar til að standa undir þessari grunnuppbyggingu. Húsnæðisstefna Reykjavíkurborgar hefur einnig gert það að verkum að efnaminna fólk hefur neyðst að flytja í úthverfin og í aðliggjandi sveitarfélög. Þetta orsakast af sökum ónægrar félagslegrar- og óhagnaðardrifinnar uppbyggingar og áherslu á lúxus íbúðir og hótel. Í því kerfi sem borgin hefur viðhaldið hafa þar lóðabraskarar geta grætt óhóflega á kostnað síhækkandi húsnæðisverðs.“

Þá er lagt til að skattkerfið verði endurreist:

„Á þessum sem og öðrum forsendum leggst borgarstjórnarflokkur sósíalista alfarið gegn þessum fyrirhuguðu veggjöldum. Við trúum því að hægt sé að byggja upp gott samgöngukerfi, til þess þurfum við að endurreisa skattkerfið og færa okkur frá hugmyndafræðinni um að þeir borgi sem noti og aftur á brautina um að þeir borgi sem geta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið

Safna undirskriftum til að skora á Alþingsmenn að stöðva málþófið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær