fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Eyjan

Advania dregur til baka samrunatilkynningu vegna frummats Samkeppniseftirlitsins

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. júní 2019 14:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Advania hefur dregið til baka samrunatilkynningu vegna kaupa félagsins á Wise í kjölfar frummats Samkeppniseftirlitsins um skaðleg áhrif samrunans á samkeppni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til rannsóknar fyrirhuguð kaup Advania hf. á Wise lausnum ehf. Advania er fyrirtæki sem starfar á breiðu sviði upplýsingatækni og er jafnframt eitt stærsta fyrirtækið á sviði fjárhags-, viðskipta- og bókhaldskerfa á Íslandi. Wise er upplýsingatæknifyrirtæki sem starfar einkum á sviði þróunar, sölu og þjónustu við fjárhagskerfið Microsoft Dynamics NAV.

Yfir helmingshlutdeild

Frummat Samkeppniseftirlitsins benti m.a. til þess að eftir samrunann hefði hið sameinaða fyrirtæki verið með um og yfir helmingshlutdeild á markaði fyrir þróun, sölu og þjónustu við fjárhagskerfi á Íslandi og að samrunaaðilar væru nánir keppinautar. Vegna þess tilkynnti Samkeppniseftirlitið samrunaaðilum í byrjun þessa mánaðar það frummat sitt að grípa þyrfti til íhlutunar vegna skaðlegra áhrifa samrunans á samkeppni. Nú í dag hafa samrunaaðilar tekið formlega ákvörðun um að draga tilkynningu sína vegna samrunans til baka. Með því er rannsókn eftirlitsins á viðskiptunum lokið.

Samkeppniseftirlitinu barst fullbúin samrunatilkynning um kaup Advania á Wise þann 13. febrúar 2019. Við meðferð málsins aflaði Samkeppniseftirlitið sjónarmiða frá markaðsaðilum og nánari upplýsinga frá samrunaaðilum, framkvæmdi athugun á meðal markaðsaðila og könnun á meðal viðskiptavina samrunaaðila. Bentu niðurstöður rannsóknarinnar til þess að starfsemi fyrirtækjanna skaraðist einkum á sviði þróunar, sölu og þjónustu svokallaðra fjárhagskerfa sem í daglegu tali eru oftast nefnd bókhaldskerfi. Bentu niðurstöðurnar jafnframt sterklega til þess að landfræðilegur markaður málsins væri Ísland, m.a. vegna eðlis þjónustunnar og krafna viðskiptavina. Þá bentu samtímagögn sem aflað var frá samrunaaðilum til sömu niðurstöðu.

Samkeppniseftirlitið aflaði upplýsinga um markaðshlutdeild fyrirtækja sem selja fjárhagskerfi á Íslandi. Þær tölur gáfu til kynna að sameinað fyrirtæki hefði haft umtalsverða yfirburði umfram keppinauta sína eða um og yfir helmingshlutdeild eftir því við hvaða markaðsskilgreiningu væri miðað. Þá hefði samþjöppun á mörkuðum málsins einnig aukist umtalsvert vegna samrunans og umfram þau viðmiðunarmörk sem litið er til við samrunaeftirlit. Var það jafnframt frummat Samkeppniseftirlitsins að samrunaaðilar hafi verið nánir keppinautar hvors annars hingað til. Þannig veita þeir sambærilega þjónustu, t.a.m. selja þeir báðir fjárhagskerfið Microsoft Dynamics NAV, og tilfærsluhlutföll viðskiptavina á milli þeirra eru há. Þannig lítur stór hluti viðskiptavina samrunaaðila á hitt fyrirtækið sem sinn næsta kost við val á fjárhagskerfi. Samtímagögn sem aflað var frá samrunaaðilum studdu jafnframt þetta frummat. Loks var það frummat Samkeppniseftirlitsins að Wise hafi verið mikilvægur keppinautur á sviði sölu fjárhagskerfa og að við samrunann hefði það samkeppnislega aðhald sem fyrirtækið hefur veitt Advania og öðrum keppinautum horfið.

Líkt og áður segir kynnti Samkeppniseftirlitið samrunaaðilum þetta frummat í upphafi mánaðarins, n.t.t. með andmælaskjali, dags. 4. júní 2019. Undir lok rannsónar málsins óskuðu samrunaaðilar eftir viðræðum um skilyrði sem unnt væri að setja samrunanum til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif hans á samkeppni. Var um að ræða hegðunarskilyrði sem að frummati Samkeppniseftirlitsins nægðu ekki til þess að koma í veg fyrir skaðleg áhrif samrunans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn