fbpx
Þriðjudagur 06.maí 2025
Eyjan

SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ SÝKNAÐ

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 1. apríl 2019 13:59

Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Samkeppniseftirlitið af kröfu Símans hf. um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála verði ógiltur í máli sem varðar einnig Vodafone (Sýn) og Nova.

Forsaga másins er sú að með ákvörðun á árinu 2015 heimilaði Samkeppniseftirlitið Vodafone og Nova að hafa með sér tiltekið samstarf um rekstur dreifikerfis fyrir farsímaþjónustu. Forsenda þessa var að fyrirtækin féllust á að hlíta skilyrðum sem vinna eiga gegn því að samstarf þeirra um rekstur dreifikerfisins raski samkeppni á mörkuðum fyrir farsímaþjónustu á bæði heildsölustigi og smásölustigi. Þá var skilyrðunum einnig ætlað að skapa fleiri valkosti og þar með aukna möguleika fyrir núverandi og nýja þjónustuaðila á markaði fyrir farsímaþjónustu á smásölustigi og stuðla þannig að frekari samkeppni á viðkomandi mörkuðum. Einnig er skapað tækifæri til betri nýtingar á fjárfestingum í undirliggjandi kerfum farsímaþjónustu.

Síminn var ósáttur við ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og skaut henni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti hana. Höfðaði Síminn í kjölfarið mál fyrir dómstólum og kvað héraðsdómur upp dóm í því máli í dag.

 Vönduð og ítarleg rannsókn

Í málinu byggði Síminn meðal annars á því að Samkeppniseftirlitið hafi ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti og að setja hafi átt samstarfinu ítarlegri skilyrði. Héraðsdómur hafnar þessu. Er það niðurstaða héraðsdóms að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi í alla staði verið vönduð og ítarleg. Er það niðurstaða héraðsdóms að engin ástæða sé til að draga í efa það mat Samkeppniseftirlitsins að skilyrðin hafi verið fullnægjandi með tilliti til ákvæða samkeppnislaga.

 Matsgerðin hróflar ekki við mati Samkeppniseftirlitsins

Undir rekstri málsins aflaði Síminn matsgerðar dómkvaddra matsmanna til að styðja málatilbúnað sinn. Er það niðurstaða héraðsdóms að matsgerðin hrófli ekki við mati Samkeppniseftirlitsins í málinu. Þá hafnar héraðsdómur að líta til skýrslu erlends ráðgjafarfyrirtækis sem Síminn aflaði af þeirri ástæðu að skýrslunnar hafi verið aflað einhliða.

 Úrskurður byggður á réttum forsendum

Í málinu byggði Síminn meðal annars á því að úrskurður áfrýjunarnefndar væri byggður á röngum forsendum. Héraðsdómur hafnar þessu og tekur fram að orðalag í úrskurðinum verði ekki skilið með svo þröngum skilningi sem Síminn geri í málatilbúnaði sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

United horfir til Mbeumo
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Heimir Már sakar stjórnarandstöðuna um enn eitt málþófið út af veiðigjöldunum – „Af hagsmunatengdum vinum má þekkja þá“ 

Heimir Már sakar stjórnarandstöðuna um enn eitt málþófið út af veiðigjöldunum – „Af hagsmunatengdum vinum má þekkja þá“ 
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þriggja vasaklúta grátskýrsla Síldarvinnslunnar – Bubbi sendir tóninn – 28 byggðir hafa tapað lífsbjörginni

Orðið á götunni: Þriggja vasaklúta grátskýrsla Síldarvinnslunnar – Bubbi sendir tóninn – 28 byggðir hafa tapað lífsbjörginni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Leiksoppar örlaganna

Óttar Guðmundsson skrifar: Leiksoppar örlaganna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hörð átök Kaliforníu og Trump – Mikilvægir hlutir gerast baksviðs

Hörð átök Kaliforníu og Trump – Mikilvægir hlutir gerast baksviðs