fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Hlustaðu á sigurlag fullveldisafmælisins eftir Jóhann G. Jóhannsson

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 4. desember 2018 18:30

Frá hátíðardagskrá Hörpu að kvöldi 1. desember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í mars auglýsti afmælisnefnd aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, eftir tillögum um nýtt kórlag í tilefni aldarafmælis fullveldis. Kallað var eftir frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi fyrir blandaðan kór og skyldi lagið hæfa tilefninu og henta vel til söngs.

Jóhann G. Jóhannsson sigraði keppnina með lagi sínu og ljóði, Landið mitt.

Lagið var frumflutt á hátíðardagskrá í Hörpu að kvöldi 1. desember. Hægt er að hlusta á lagið hér.

Mikill áhugi var fyrir samkeppninni og bárust nefndinni 60 tillögur. Dómnefndina skipuðu Árni Heimir Ingólfsson, formaður dómnefndar, fulltrúi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Magnús Ragnarsson, fulltrúi Tónskáldafélags Íslands, Sigurlín Bjarney Gísladóttir, fulltrúi Rithöfundasambands Íslands, Björgvin Halldórsson, fulltrúi Félags tónskálda og textahöfunda, Hlín Pétursdóttir Behrens, fulltrúi Félags íslenskra hljómlistarmanna, og Bergljót Haraldsdóttir, fulltrúi Ríkisútvarpsins.

 

Í tilkynningu segir um lagið:

„Sigurlagið Landið mitt féll einkar vel að þeim skilyrðum sem fram komu í auglýstum reglum samkeppninnar.  Lagið er í fremur hefðbundnum stíl og kallast þannig á við hefð ættjarðarlaga, er bjart og einlægt, en með áhugaverðri úrvinnslu í dekkri millikafla. Ljóðið er lofsöngur til Íslands og fangar vel sérstöðu landsins í öllum sínum fjölbreytileika og andstæðum, en um leið er horft til framtíðar og í lokahendingunni rennur skáldið eða ljóðmælandinn saman við landið sjálft.“

Landið mitt

Þú ert ís, þú ert eldur og aldan blá,
þú ert auður og von og trú,
þú ert friðsæld og frelsi og fjöllin há,
landið fegursta, það ert þú.

Þegar vorsólin rís yfir borg og bæ
og hvert blóm fær sitt líf og lag
berst sem óður til lífsins í ljúfum blæ
söngur lóu um sumardag.

Þú ert napurt norðanél,
þín er nóttin svört sem hel,
þú ert dimm og hyldjúp gjá,
þú ert dáið, lítið strá.
Góða Ísland, gamla Ísland,
þú sem geymir mín spor,
gef mér kjark, gef mér dug, gef mér þor!

Sé með svikum og vélráðum veist að þér
skal ég verja hvern dal og hól
og að endingu tekur á móti mér
moldin þín þegar sest er sól.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“