fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Helena Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Lýðháskólans á Flateyri

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 4. janúar 2018 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helena Jónsdóttir

Stjórn félags um stofnun Lýðháskóla á Flateyri hefur ráðið Helenu Jónsdóttur sálfræðing sem framkvæmdastjóra Lýðháskólans á Flateyri. Helena hefur undanfarin þrjú ár starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi á vegum samtakanna Læknar án landamæra í Afganistan, Suður Súdan, Egyptalandi og Líbanon. Áður var hún m.a. meðeigandi og starfandi sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, framkvæmdastjóri hjá Glitni og framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi. Helena hefur auk þess starfað sem ráðgjafi hjá Capacent og PriceWaterhouseCoopers og sinnt  rannsóknum og kennslu í sálfræði og markaðsfræði við Háskóla Íslands. Þá hefur hún unnið með ungu fólki í vanda á vegum Reykjavíkurborgar og félagsmálaráðuneytisins.

Helena lauk BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og Cand.Psych. prófi frá sama skóla árið 2010. Hún varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 2006.

Framkvæmdastjóri Lýðháskólans á Flateyri undirbýr starfsemi skólans en sérstök fagráð hafa unnið að því að móta námsframboð skólans á þremur sviðum, sjálfbærni og umhverfismálum, kvikmyndavinnu og tónlistarsköpun. Framkvæmdastjóri mun vinna að skipulagi skólans og útfærslu og þróun námsframboðs auk þess að vinna verkefni fyrir Fræðslumiðstöð Vestfjarða um lýðháskóla almennt samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Flateyri og mun Helena þegar hefja störf.

Runólfur Ágústsson stjórnarformaður félags um stofnun Lýðháskóla á Flateyri segir mikinn feng af ráðningu Helenu fyrir skólann og samfélagið: „Ráðning þessa öfluga framkvæmdastjóra fyrir skólann er fyrsta skrefið í þeirri mennta- og þekkingaruppbyggingu sem við sjáum fyrir okkur að starf lýðháskóla hafi í för með sér bæði á Flateyri og svæðinu öllu. Við erum bæði glöð og bjartsýn við þessi tímamót og hlökkum til þess að vinna með Helenu að því að þetta mikilvæga verkefni verði að veruleika“

Helena segir það ekki hafa verið á dagskrá að flytja heim þar sem aðkallandi verkefni á vegum Lækna án landamæra hafi átt hug hennar allan síðustu 3 ár, en

“Það hefur lengi verið draumur minn að búa á Flateyri og fá tækifæri til þess að koma að uppbyggingu á atvinnu og námsmöguleikum á svæðinu. Ég hef raunar verið eins og grár köttur á Flateyri síðustu 10 ár og þekki þar orðið hvern krók og kima. Það var því auðveld ákvörðun að slá öðrum verkefnum á frest og játast þessu gríðarlega spennandi verkefni. Flateyri er einstakur kostur fyrir svona skóla og þýðing hans verður mikil fyrir byggðarlagið og svæðið í heild. Að fá að leiða þetta verkefni og þann öfluga hóp af fólki sem að undirbúningi þess hefur staðið er mér sönn ánægja og mun ég leggja mitt af mörkum til að vegur þess verði sem mestur.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki