fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Undirritar ekki sáttmála um bann gegn kjarnavopnum fyrir Íslands hönd

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 26. september 2018 16:32

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Bergdís Ellertsdóttir, fastafulltrúi Íslands, á allsherjarþinginu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skorað var á íslensk stjórnvöld í dag að gerast aðili að sáttmála um alþjóðlegt bann gegn kjarnavopnum, í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi gegn kjarnavopnum. Um leið og fimmtíu lönd hafa lokið fullgildingarferlinu mun sáttmálinn öðast stöðu sem viðurkenndur sáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Sem stendur hafa 60 ríki undirritað sáttmálann, en aðeins 15 hafa fullgilt hann.

Sjá nánarKrefjast þess að íslenskt stjórnvöld gerist aðilar að sáttmála gegn kjarnavopnum: „Framtíð mannkyns er að veði“

 

Ísland eltir kjarnorkuveldin

Í dag gafst öðrum ríkjum, þar á meðal Íslandi, færi til að gerast aðilar að sáttmálanum.

Eyjan sendi fyrirspurn til utanríkisráðuneytisins um hvort Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sem þessa dagana sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, hygðist undirrita kjarnorkusáttmálann fyrir Íslands hönd.

Svo verður víst ekki, fyrr en kjarnorkuveldin sjálf láti verða af því:

„Afstaða Íslands til kjarnavopna er skýr og sú að stefna skuli að kjarnavopnalausri veröld og að kjarnavopnum sé eytt með markvissum og gagnkvæmum hætti. Það hefur hins vegar verið afstaða stjórnvalda að á meðan kjarnavopnaveldin vilja ekki undirrita umræddan samning öðlist hann aldrei eiginlegt gildi. Um leið er hætta á að hann geti grafið undan þeim samningum sem þó eru við lýði og kjarnavopnaveldin hafa undirritað, eins og samninginn um bann við útbreiðslu kjarnavopna (NPT). Afstaða Íslands snýst því ekki um markmiðið um heim án kjarnavopna, sem við erum öll sammála um, heldur leiðina að því markmiði. Ísland leggur áherslu á að fá kjarnavopnaveldin að borðinu til umræðna um leiðir að kjarnorkuvopnalausum heimi. Það er forsenda Íslands fyrir undirritun slíkra samninga.Hins vegar má nefna að á morgun sækir utanríkisráðherra fund aðildarríkja samnings um allsherjarbann við tilraunum gegn kjarnavopnum á morgun þar sem lögð verður áhersla á mikilvægi þess að sá samningur taki gildi,“

segir í svari utanríkisráðuneytisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins