fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Veita styrki til mannúðarverkefna borgarasamtaka

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 5. mars 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd-Stjórnarráðið

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið  að veita allt að 70 milljónum króna til mannúðarverkefna borgarasamtaka. Þar af mun ráðuneytið veita allt að 42,5 milljónum króna til annarra verkefna en þeirra sem bregðast við neyð fólks vegna ástandsins í Sýrlandi.

Við þessa styrkúthlutun verður farið eftir verklagsreglum ráðuneytisins um samstarf við borgarasamtök frá 2015. Í reglunum er að finna vinnulag og önnur viðmið sem notuð eru við mat á umsóknum auk skilyrða sem borgarasamtök verða að uppfylla til að geta sótt um styrki.

Horft er til gæða og væntanlegs árangurs verkefna. Sérstök athygli er vakin á því að búist er við að verkefnin svari alþjóðlegum neyðarköllum (e. appeal), s.s. frá samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna vegna mannúðarmála (UNOCHA/ReliefWeb) og Alþjóðaráði Rauða krossins og Rauða hálfmánans (ICRC). Einnig er mikilvægt að inngrip og framkvæmd verkefna íslenskra borgarasamtaka sé samhæft aðgerðum annarra aðila á vettvangi. Litið er á skilvirkni og kröfur gerðar um vönduð og fagleg vinnubrögð, sem eru lykilatriði við ákvarðanatöku um framlög. Við mat á umsóknum verður m.a. stuðst við viðmið SPHERE handbókarinnar til að tryggja lágmarksaðstoð við haghafa.

SautjanVerklagsreglur utanríkisráðuneytisins byggjast m.a. á alþjóðlegri stefnu og starfsaðferðum við styrkveitingar úr opinberum sjóðum og stefnumiðum ráðuneytisins.

Einungis verður tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má hér á vef Stjórnarráðsins, en þar má einnig finna nánari upplýsingar um verklagsreglur, sem og aðrar hagnýtar upplýsingar.

Utanríkisráðuneytið óskar jafnframt eftir styrkumsóknum frá íslenskum borgarasamtökum vegna þessara mannúðarverkefna. Umsóknir skal senda á netfangið borgarasamtok.styrkir [hjá] mfa.is fyrir kl. 23:59 fimmtudaginn 5. apríl næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna