fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Eyjan

Utanríkisráðherra í Osló: Ræddi EFTA, Brexit, öryggis- og varnarmál og þróunarsamvinnu

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. janúar 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Málefni EFTA, Brexit, öryggis- og varnarmál og þróunarsamvinna voru meðal umræðuefna á fundum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra með norskum ráðamönnum í Osló í dag. 

Á fundi sínum með Torbjørn Isaksen, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs, tók Guðlaugur Þór upp fríverslunarmál, ekki síst málefni EFTA og samvinnu Íslands og Noregs. Þá ræddu ráðherrarnir áhrif Brexit á fríverslunarumhverfið og EFTA.

Utanríkisráðherra fundaði einnig með Nikolai Astrup, þróunarmálaráðherra Noregs, og gerði ráðherra meðal annars grein fyrir auknum framlögum Íslands til þróunarsamvinnu og mannúðarastoðar, auk þess að ræða samstarf við einkageirann.

Að endingu átti Guðlaugur Þór fund með Ine Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, þar sem öryggismál á norðanverðu Atlantshafi og aukin samvinna Íslands og Noregs í öryggis- og varnarmálum voru meðal fundarefna. Einnig ræddu ráðherrarnir þróun mála í Evrópu, norrænt samstarf sem og samvinnu á norðurslóðum, en Ísland tekur við formennsku í Norðurlandasamstarfi og Norðurskautsráðinu á næsta ári. Þá tæptu ráðherrarnir á helstu málum á alþjóðavettvangi. 

Í gær ræddi utanríkisráðherra við forsvarsmenn Atvinnurekendasambands Noregs (NHO) og utanríkismálastofnunarinnar (NUPI) þar sem þróun mála í Evrópu var í forgrunni.

„Ísland og Noregur eru mjög nánar vina- og frændþjóðir og við deilum hagsmunum og sýn í mörgum málaflokkum. Samvinna okkar í öryggis- og varnarmálum hefur vaxið ört á umliðnum árum og horfum sömu augum á þróun í norrænni samvinnu og á norðurslóðum. Málefni EFTA verða sömuleiðis sífellt þýðingarmeiri. Því er mikilvægt að treysta samstarfið við Noreg og nýja ríkisstjórn enn frekar sem var meginmarkmið ferðar minar til Oslóar að þessu sinni,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum