fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Vald á viðsjárverðum tímum: Alþjóðleg barátta gegn mannnréttindabrotum – Opinn fundur í Háskóla Íslands

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 24. janúar 2018 10:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 

Á morgun verður opinn fundur á vegum Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands  þar sem John Fisher, yfirmaður hjá Human Rights Watch (HRW) og Laila Matar, fulltrúi HRW í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, fjalla um baráttuna gegn mannréttindabrotum.
Í tilkynningu segir:

Árangri mannréttindahreyfinga um heim allan stafar ógn af þeim breytingum sem átt hafa sér stað á alþjóðavísu að undanförnu. Popúlískir leiðtogar njóta í auknum mæli hljómgrunns kjósenda, ráðamenn sýna aukna einræðistilburði og aldrei hafa fleiri verið á flótta undan átökum. Á sama tíma fara kynþáttafordómar og útlendingahatur vaxandi. Hvaða áskoranir hafði árið 2017 í för með sér og hvað hefur áunnist? Hvað geta ríkisstjórnir, fjölmiðlar, félagasamtök og almenningur gert árið 2018 til þess að sporna við árásum gegn mannréttindum á heimsvísu? Hvaða hlutverki gegnir Ísland og hvernig getur það lagt sitt af mörkum? 

John Fisher er yfirmaður á skrifstofu Human Rights Watch (HRW) í Genf og leiðir vinnu samtakanna gagnvart Mannréttindaráði og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Genf. Áður en hann hóf störf hjá HRW var hann meðal annars framkvæmdastjóri LGBT samtakanna Egale Canada, kenndi námskeið í mannréttindafræðum við Háskólann í Ottawa og Carleton háskóla og vann sem aðstoðarmaður dómara við Hæstaréttinn í Auckland. 

Laila Matar er fulltrúi HRW gagnvart Mannréttindaráði og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Genf. Hún var áður fulltrúi fyrir Cairo stofnunina í mannréttindafræðum þar sem hún starfaði sem lögmaður að borgaralegum og pólitískum réttindum í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

 

Fimmtudaginn 25. janúar frá kl. 12 – 13 í Öskju 132 í Háskóla Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki