fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Landvernd vill línur í jörð á Vestfjörðum – Segja raforkuöryggi tífaldast

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 10. janúar 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítið verður um rafmagnslínur sem þessar, fái Landvernd sínu fram

Meira en tífalda má raforkuöryggi á Vestfjörðum með því að setja hluta Vesturlínu og fleiri línur á sunnanverðum Vestfjörðum í jörð. Hinsvegar gerir virkjun Hvalár ekkert til að bæta raforkuöryggið þar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landvernd.

Þetta er meðal niðurstaðna ráðgjafarfyrirtækis á sviði raforkumála sem Landvernd fékk til þess að leita leiða til þess að styrkja raforkuflutningskerfið á Vestfjörðum og bæta raforkuöryggi. Framkvæmdastjóri og starfandi formaður Landverndar afhentu í dag Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrsta eintak skýrslunnar.

Lengi hefur verið rætt um þann vanda sem Vestfirðingar eiga við að etja þar sem er lakara raforkuöryggi en annarsstaðar á landinu. Stjórn Landverndar óskaði í október sl. eftir úttekt á möguleikum á að bæta úr ástandinu hjá kanadísku ráðgjafarfyrirtæki á sviði raforkuflutnings, METSCO Energy Solutions. Úttektin liggur nú fyrir og eru niðurstöður hennar að með því að leggja samtals fimm 66 og 132 kílóvolta línur í jörð má bæta raforkuöryggi Vestfirðinga meira en tífalt.

Vesturlína, sem svo er kölluð, samanstendur af Geiradalslínu 1, Mjólkárlínu 1 og Glerárskógarlínu 1 og liggur frá Hrútafirði til Mjólkárvirkjunar. Línan er rekin á 132 kílóvolta spennu. Um hana fer allur raforkuflutningur til Vestfjarða. Truflanir á línunni hafa verið þónokkrar á undanförnum árum. Minni línur liggja á firðina, það er 66 og 33 kílóvolta línur og iðulega hafa verið truflanir vegna þeirra líka. Tálknafjarðarlína og Breiðadalslína eru 66 kílovolta loftlínur og frá Breiðadal er 66 kílóvolta lína til Bolungarvíkur og Ísafjarðar og síðan 66 kílóvolta jarðstrengur milli Ísafjarðar og Bolungavíkur. Þrjár 33 kílóvolta loftlínur tengja síðan Mjólká við Breiðadal með tengingu til Hrafnseyrar og Þingeyrar. Sömuleiðis eru 33 kílovolta línur frá Geiradal til Hólmavíkur og frá Keldeyri til Bíldudals.

Því hefur verið haldið fram í umræðu um 55 MW Hvalárvirkjun að hún muni bæta raforkuöryggi svæðisins. Á Ströndum liggur annað kerfi raforkudreifingar og er raforkuöryggi þar ekki talið vandamál. Ekki hefur verið vísað til þess í umræðu um virkjun Hvalár.

Skýrsla kanadíska ráðgjafarfyrirtækisins tekur af öll tvímæli um það að virkjun Hvalár og sú tenging hennar við flutningskerfi sem hefur verið í umræðunni, styrkir sem slík ekki raforkuöryggi Vestfirðinga. Auknu raforkuöryggi má hinsvegar koma á með því að leggja áðurnefndar loftlínur í jörð. Myndi raforkuöryggi Vestfirðinga aukast meira en tífalt eins og áður segir og fram kemur í skýrslunni að framkvæmdatími slíkra jarðstrengja sé almennt ekki meira en 1-2 ár og heildartími með leyfisveitingum 2-3 ár. Fjárfesting í jarðstrengjum skilar sér mun fyrr en þegar um loftlínur er að ræða, sem tekur oft 8-10 ár að leggja, með leyfisveitingaferli.

Tillaga skýrsluhöfunda er að endurnýja Mjólkárlínu (MJ1) með jarðstreng og sömuleiðis fjórar 66 kílóvolta línur; Tálknafjarðarlínu 1 (TA1), Bolungarvíkurlínu 1 (BV1), Breiðadalslínu 1 (BD1) og Ísafjarðarlínu 1 (IF1). Um væri að ræða um 194 km leið samtals. Við þetta er raforkuöryggi talið batna tífalt. Benda má á að svokölluð hringtengin raforku um Vestfirði, sem mikið er nefnd í tengslum við Hvalárvirkjun, mundi kalla á sambærilega styrkingu þess hluta raforkukerfisins sem hér ræðir, auk kostnaðarsamrar og erfiðrar tengingar virkjunarinnar við Ísafjörð og nærsveitir. Þá eru jákvæð áhrif jarðstrengja miðað við loftlínur á landslag og ásýnd byggða ótvíræð.

Landvernd vill stuðla að málefnalegri umræðu um nýtingu íslenskrar náttúru til öflunar raforku og um raforkuflutning. Skýrslan er 21 síða að lengd og er gefin út á ensku. Vonast samtökin til þess að skýrslan geti styrkt grundvöll fyrir upplýstri umræðu og bætt ákvörðunartöku stjórnvalda bæði á landsvísu og í heimabyggð um þessi vandmeðförnu mál.

Skýrslan Jarðstrengir á Vestfjörðum (e. Comparison of High Voltage Cables Iceland) er aðgengileg á heimasíðu Landverndar: http://landvernd.is/sidur/frettatilkynning-raforkuoryggi-a-vestfjordum-best-tryggt-med-jardstrengjum
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki