fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Ólafur óskar eftir fundi með þingnefnd vegna einkavæðingar Búnaðarbankans

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. apríl 2017 17:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ólafsson. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Ólafur Ólafsson hefur farið þess á leit við formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að fá að tjá sig fyrir nefndinni um einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands hf. fyrir tæpum fimmtán árum. Rannsóknarnefnd Alþingis þann 29. mars síðastliðinn út skýrslu um einkavæðingu bankans sem mikið hefur verið í umræðunni.

Ólafur greinir frá þessu í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum.

Þar segir meðal annars:

Rannsóknarnefnd Alþingis kynnti niðurstöðu sína um þátt þýska bankans Hauck & Aufhäuser í kaupum á Búnaðarbanka Íslands hf., fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þann 29. mars sl. þar sem ég var borinn þungum sökum. Í kjölfarið hófst mikil fjölmiðlaumfjöllun sem byggði á skýrslu nefndarinnar. Við slíkar aðstæður er ógerningur að halda uppi vörnum og nauðsynlegt að gefa sér ráðrúm til að rýna í ásakanir sem þar koma fram.

Ég gaf samdægurs út yfirlýsingu þar sem ég áréttaði að ríkið hefði fengið greitt að fullu fyrir Búnaðarbankann og að staðið hefði verið við alla samninga. Enn fremur skýrði ég frá því að ég myndi ekki tjá mig um efni skýrslunnar fyrr en ég hefði kynnt mér hana.

Það er ekki hlaupið að því að rifja upp tæplega fimmtán ára gamalt mál. Síðan skýrsla rannsóknarnefndarinnar kom út hef ég farið yfir öll aðgengileg gögn er tengjast málinu. Ég tel mikilvægt að kasta ljósi á þær nýju upplýsingar sem ég hafði ekki fengið aðgang að áður og niðurstöður eru dregnar af í rannsóknarskýrslunni. Réttur vettvangur til að bregðast við er að mínu mati fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, enda var niðurstaða rannsóknarnefndarinnar kynnt þar.

Ég geri mér vonir um að varpa þar ljósi á atburðarrásina og svara spurningum sem nefndin kann að beina til mín.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun