Mikill áhugi er á Íslandi í Strassborg þessi dagana þar sem Ísland er heiðursgestur á einum elsta og stærsta jólamarkaði í heimi. Formleg opnunarhátíð íslenska þorpsins á jólamarkaðinum í Strassborg fór fram síðastliðið laugardagskvöld, en þetta er í 447 skipti sem markaðurinn er settur. Búist er við að rúmlega tvær milljónir heimsæki markaðinn í desember.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Íslandsstofa sendi frá sér í morgun.
Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Frakklandi opnaði íslenska þorpið við hátíðlega athöfn. „Íslendingar leggja mikið upp úr góðum mat um jólin líkt og Frakkar, og það er gaman að fá tækifæri til að kynna borgarbúum helstu nauðsynjavöru Íslendinga um hátíðina, eins og hangikjöt, laufabrauð, malt og appelsín o.fl. góðgæti,” sagði Kristján, en ellefu íslensk fyrirtæki taka þátt í markaðnum og selja þar íslenskar vörur.
Roland Ries borgarstjóri Strassborgar sagði að Ísland væri ríkt af jólahefðum sem Frakkar hlökkuðu til að kynnast nánar. „Við þökkum Íslandi fyrir að taka þátt í jólamarkaðnum og vonumst til að efla enn frekar samstarfið á milli ykkar fallega lands og Strassborgar,“ sagði hann ennfremur.
Í framhaldinu tóku við opnunartónleikar í dómkirkjunni þar sem tónlistarfólkið Svavar Knútur og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir fluttu íslensk lög og jólalög í bland. Samflutningur þeirra m.a. á jólalaginu Nóttin var sú ágæt ein vakti mikla lukku. Um 700 manns sóttu tónleikana sem voru á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Frakklandi standa að landkynningu í tengslum við þátttöku Íslands á markaðnum til að kynna íslenskar vörur, mat og menningu. Íslensku fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu eru Bæjarins Bestu, Hekla Ísland, Handprjónasambandið, Heilsukokkur, Ice-Co, Ice Wear, Iceland Treasures, Lýsi, Reykjavík Distillery, Skinboss og Urð. Þá hefur Samskip annast alla flutninga á vörum til Frakklands í tengslum við verkefnið.
Dagana 13. og 14. desember verða tónleikar með Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar. Einnig verður kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson sýnd í Cinema Star kvikmyndahúsinu en hún fékk verðlaunin „Un Certain Regard“ á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2015.