fbpx
Miðvikudagur 13.ágúst 2025
Eyjan

Þórunn og Steinar ráðnir aðstoðarmenn umhverfis- og auðlindaráðherra

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. janúar 2017 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórunn Pétursdóttir og Steinar Kaldal
Þórunn Pétursdóttir og Steinar Kaldal.

Þórunn Pétursdóttir og Steinar Kaldal hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. Þau hefja störf í næstu viku. Þetta segir í tilkynningu sem Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins sendi á fjölmiðla fyrir stuttu.

Þórunn Pétursdóttir nam umhverfisfræði við Garðyrkjuskóla ríkisins og landfræði við Háskóla Íslands. Hún lauk mastersgráðu (MSc) í landgræðsluvistfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands og er að ljúka doktorsgráðu í landgræðsluvistfræði frá sama skóla.

Þórunn hefur víðtæka reynslu á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála. Hún sat um árabil í stjórn Landverndar og var í fyrstu stjórn Vatnajökulsþjóðgarðar. Hún hefur starfað hjá Landgræðslu ríkisins frá árinu 2003 og sinnt þar fjölbreyttum verkefnum, fyrst sem héraðsfulltrúi á Vesturlandi en síðar sem sérfræðingur, m.a. á sviði sjálfbærni og vistheimtar. Þá hefur hún tekið þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum, innlendum sem og erlendum, sem tengjast m.a. auðlindanýtingu og umhverfisvernd.

Á árunum 2010 – 2013 var Þórunn í rannsóknarnámsstöðu hjá Institute of Environment and Sustainability sem er ein af rannsóknarstofnunum Framkvæmdaráðs Evrópusambandsins.

Þórunn er í sambúð og á fjögur börn og tvö barnabörn.

 

Síðastliðin ár hefur Steinar unnið sem verkefnisstjóri hálendisverkefnis Náttúruverndarsamtaka Íslands og Landverndar sem er samvinnuverkefni náttúruverndarsamtaka, útivistarsamtaka og Samtaka ferðaþjónustunnar og snýr að vernd miðhálendisins. Steinar er jafnframt formaður FUMÍ, félags umhverfisfræðinga á Íslandi.

Steinar er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund, BA-próf í stjórnmálafræði með atvinnulífsfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og mastersgráðu (MSc) í umhverfisstjórnun- og stefnumótun frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Steinar hefur auk þess lokið fréttamannaprófi Ríkisútvarpsins.

Steinar hefur m.a. starfað sem leiðbeinandi á leikskóla, blaðamaður á Fréttablaðinu, verkefnastjóri í Frístundamiðstöðinni Frostaskjóli og sem sérfræðingur hjá Útlendingastofnun.

Steinar er giftur Soffíu Erlu Einarsdóttur ráðgjafa á meðferðarstöðinni Stuðlum og eiga þau tvo drengi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“