fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Eyjan

Ný ríkisstjórn tekin við völdum

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 11. janúar 2017 13:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson Mynd: Sigtryggur Ari
Bjarni Benediktsson Mynd: Sigtryggur Ari

„Mér finnst hún ekki hafa notið sannmælis,“ sagði Bjarni Benediktsson verðandi forsætisráðherra þegar hann var spurður um fráfarandi ríkisstjórn í beinni útsendingu á Bylgjunni frá Bessastöðum en þar var haldinn síðasti ríkisráðsfundur ríkisstjórnarinnar í hádeginu og lauk honum rétt í þessu. All­ir ráðherr­ar mættu til há­deg­is­verðar með for­seta Íslands, Guðna Th. Jó­hann­es­syni. Klukkan hálf tvö mætti síðan ný ríkisstjórn á Bessastaði og tók við stjórn. Bjarni bætti því við í samtalinu að hann teldi að sagan myndi dæma fráfarandi ríkisstjórn vel.

Bjarni Benediktsson sagði að ágætlega hafi verið tekið í ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar sem hann lagði fram á fundi í Valhöll í gær og hefur Páll Magnússon, þingmaður og oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, sagt í dag að hann styðji hana ekki en enginn ráðherranna er úr Suðurkjördæmi.

Bjarni sagði að vissulega hefðu verið deildar meiningar um skipunina en hún hefði hlotið brautargengi.

„Ég vil fyrst og fremst vera með fulla starfsorku,“ sagði Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fráfarandi ráðherra, þegar hún var spurð að því hvort hún væri óánægð með að vera ekki ráðherra í nýrri ríkisstjórn. „Ég held að allir skilji það.“ En Ólöf er að glíma við krabbamein.

Ásta Helgadóttir, þingmaður Pírata, sagði um nýju ríkisstjórnina: „Ég verð að vera svolítið efins, sérstaklega þarsem við kusum útaf því að forsætisráðherra var í Panamaskjölunum og núna fáum við annan sem var líka í þeim. Ríkisstjórnin byrjar á völtum fótum.“

„Vantar framsýni, það er eiginlega ekkert um ferðaþjónustu í stjórnarsáttmálanum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir fráfarandi ráðherra á Bessastöðum í dag.

Katrín Jakobsdóttir, þingmaður og formaður Vg, vildi meina að ekki væri minnst á húsnæðismál í stjórnarsáttmálanum og sagði að það væri ekki sterk áhersla á velferðarmál í honum.

Gunnar Bragi Sveinsson, fráfarandi ráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins sagði stjórnarsáttmálann ekki merkilegt plagg. Hann lofaði því einnig að veita ríkisstjórninni mikið og gott aðhald á kjörtímabilinu.

Börkur Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“