fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Unnur Brá verður forseti Alþingis. Ráðherraefni ríkisstjórnarinnar komin á hreint

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. janúar 2017 20:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unnur Brá Konráðsdóttir. Mynd: DV
Unnur Brá Konráðsdóttir. Mynd: DV

Sigríður Á. Andersen, Jón Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Jón Gunnarsson eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í nýrri ríkisstjórn og Bjarni Benediktsson mun leiða hana. Kristján Þór verður mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún mun sjá um ferðamál, iðnað og nýsköpun í atvinnuvegaráðuneytinu og Jón fer með samgöngu-, fjarskipta- og byggðamál í innanríkisráðuneytinu. Sigríður Andersen fer með dómsmál í því ráðuneyti. Þá verður Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Unnur Brá Konráðsdóttir verður forseti Alþingis og Birgir Ármannsson þingflokksformaður.

Bene­dikt Jó­hann­es­son, formaður Viðreisn­ar, verður fjár­málaráðherra í nýju rík­is­stjórninni. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir verður land­búnaðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráðherra og Þor­steinn Víg­lunds­son verður fé­lags­málaráðherra.

Þing­flokk­ur Bjartr­ar framtíðar samþykkti líka í kvöld ráðherra­skip­an í nýrri rík­is­stjórn Bjartr­ar framtíðar, Sjálf­stæðis­flokks og Viðreisn­ar.

Ótt­arr Proppé verður heil­brigðisráðherra og Björt Ólafs­dótt­ir um­hverf­is- og auðlindaráðherra.

Mbl.is virðist hafa verið fyrst með fréttirnar.

Börkur Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið