fbpx
Miðvikudagur 23.júlí 2025
Eyjan

Hvar er afsökunarbeiðni frá Íslandsspilum og Gallup?

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 16. september 2017 16:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirlit með fjárhættuspilaiðnaðinum á Íslandi er í molum. Á árunum 2011–13 var reynt að koma böndum á þennan óhugnanlega tugmilljarða iðnað með lögum. Alþingi sýndi málinu hins vegar engan áhuga og flestir þeirra sem tjáðu sig um fram komið lagafrumvarp sýndu því fjandskap. Málið dagaði því uppi.

Ærunni fórnað fyrir spilagróðann

Þessa sögu þekki ég mjög vel því ég var sá ráðherra sem reyndi á þessum árum að bæta úr því ófremdarástandi sem ríkir hvað varðar varnir fyrir spilafíkla. Þeir eru ekki ýkja margir en nægilega margir þó til að fóðra Háskóla Íslands, SÁÁ, Landsbjörg og Rauða krossinn, svo ríkulega að æran varð þeim fyrir bragðið minna virði en peningarnir sem aflað er með fjárhættuspilum.

Háskóli Íslands lætur sér sæma að reka grófar fjárhættubúllur undir Háspennu- og Gullnámuheitum vel vitandi að þannig má lokka inn fyrir þröskuld fólk sem haldið er spilafíkn. En öll met í ósvífni þykja mér þó slegin með nýupplýstu háttalagi Íslandsspila, regnhlífarsamtaka SÁÁ, Rauða krossins og Landsbjargar.

Sjálfum sér til höfuðs!

Ég ætlaði vart að trúa mínum eigin augum við lestur úttektar DV, í helgarblaðinu 8. september, á tilraunum sem þessir aðilar eru að gera á spilafíklum í samstarfi við framleiðendur lokkunarleikja. Milligönguaðilinn samkvæmt úttektinni er Gallup.

Samkvæmt frásögn DV ganga tilraunirnar út á að starfsmenn Gallup láta spilafíkla fást við mismunandi spennuleiki undir eftirliti og mælingum svo búa megi til sem bestar gildrur fyrir þá fyrir framan vélarnar. Spilafíklarnir fá greitt fyrir að gerast þannig tilraunadýr sjálfum sér til höfuðs! Þetta getur varla flokkast undir annað en nánast glæpsamlegt siðleysi.

Einhver umfjöllun hefur orðið í fjölmiðlum í kjölfar uppljóstrana DV. En meiri mætti hún verða og almennari því tilefnið er ærið.

Þöggun á þingi

Þá komu allar endurminningarnar til baka. Þegar ég fyrst byrjaði að fjalla um þessi mál á Alþingi um miðjan tíunda áratuginn og tók þar við kefli sem Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og alþingismaður, hafði haldið á lofti og síðar Rannveig Guðmundsdóttir þingkona. Þá tók ég fljótlega eftir ákveðnu hegðunarmynstri í þingsalnum. Varla hafði umræða hafist um málið þegar þingsalurinn nánast tæmdist. Hver vildi lenda upp á kant við hjálparsveitirnar, Rauða krossinn eða Háskóla Íslands? „Eða ert þú á móti þessum eðlu stofnunum og lífsnauðsynlegu starfsemi?“ Þetta var spurningin sem lá í loftinu.

Reynt að ná samkomulagi um breytingar

Þegar ég síðan kom í dómsmálaráðuneytið sem ráðherra haustið 2010 var ég staðráðinn í því að reyna að færa þessi mál til betri vegar. Lét ég ráðast í mikla undirbúningsvinnu og lagði síðan til langtímaáætlun um breytingu á lagaumhverfi og eftirliti. Allt skyldi þetta gert í skrefum og með þeim hætti að sem víðtækust sátt gæti skapast og þannig forsendur fyrir því að árangur næðist. Á grundvelli þessarar vinnu var lagt fram áður nefnt lagafrumvarp. Áhugasamir geta síðan skoðað umræðuna sem þá fór fram í þingsal en áhugaleysið er hins vegar erfiðara að greina því þögnin ein er þar til vitnis.

DV rýfur þögnina

En nú er sem sagt svo komið að eftirlitið með spilavítiskössum hefur sennilega aldrei verið minna og ósvífnin aldrei meiri. DV á hins vegar mikið lof skilið fyrir rannsóknarvinnu sína. Megi hún verða fyrsta skrefið í að gerð verði gangskör að því laga þessi mál – ekki með sýndareftirliti eins og nú er og hefur alla tíð verið, heldur verði málið tekið föstum tökum

Skref númer tvö væri augljóslega afsökunarbeiðni af hálfu Íslandsspila og Gallup en stjórnsýslan og Alþingi mættu einnig axla sinn skerf af skömminni.

Að þessum skrefum teknum mætti setja lög um óháð eftirlit með þessari háskalegu starfsemi. Frumvarpið er tilbúið. Það mætti byrja á því að lögfesta það. En þar er umgjörðina að finna. Síðan þarf meira að koma til.

Verst er lognmollan, andvaraleysið og þögnin. Gott þegar hún er rofin þótt tilefnið sé ekki til að gleðjast yfir!

Höfundur er fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu

Sigmar Guðmundsson: Stjórnarandstaðan reyndi ekki að koma neinum málum í gegn – var bara á móti öllu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kolla varar Samfylkinguna við – Megn óánægja með flokkinn í sumum hverfum borgarinnar

Kolla varar Samfylkinguna við – Megn óánægja með flokkinn í sumum hverfum borgarinnar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Furðar sig a gullfiskaminninu og hjólar í Guðrúnu- „Guðrún Hafsteins peddlar einhverju nöttara samsærisbulli“

Furðar sig a gullfiskaminninu og hjólar í Guðrúnu- „Guðrún Hafsteins peddlar einhverju nöttara samsærisbulli“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni – Guðrún veldur ekki verkefninu – brestur flótti á þingmenn stjórnarandstöðunnar?

Orðið á götunni – Guðrún veldur ekki verkefninu – brestur flótti á þingmenn stjórnarandstöðunnar?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir

Dineout og Heimar umbreyta upplifun gesta í mathöllum – ein greiðsla, margir staðir
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?

Orðið á götunni: Hvenær tekur maður þátt í málþófi og hvenær ekki?