Íslendingar voru meðal tónleikagesta þegar hryðjuverkamaður sprengdi sjálfan sig í loft upp í Manchester í Bretlandi á mánudagskvöld. Alls létust 22 og 119 slösuðust, mörg lífshættulega.
Sjálfsmorðssprengjumaðurinn lét til skarar skríða þegar tónleikum söngkonunnar Ariana Grande var nýlokið og fólk á leið út úr tónleikahöllinni. Um 21 þúsund manns voru á tónleikunum, langflest yngra fólk. Mörg hinna látnu og slösuðu eru börn og unglingar enda Ariana Grande afar vinsæl meðal tónlistarunneda í þeim aldurshópum.
Frændsystkinin Ísak Snær Ægisson og Kara Lind Óskarsdóttir voru á tónleikunum. Þau eru 14 og 15 ára gömul. Ísak Snær er sonur Áslaugar Fjólu Magnúsdóttur söngkonu sem búsett er ásamt fjölskyldu sinni í Hafnarfirði. Áslaug Fjóla er fædd og uppalin á Akranesi. Hún á fjölmarga vini þar í dag og heimsækir Skagann oft meðal annars til að syngja.
Við vorum búin að skipuleggja þessa ferð til Manchester í október og mikil tilhlökkun hjá fjölskyldunni. Í gær áttum við góðar stundir í borginni og um kvöldið rétt fyrir tónleikana vorum við á gangi um borgina í grennd við tónleikastaðinn. Það var svo gaman að sjá fólkið. Allir voru syngjandi og trallandi og þarna voru fjölmargar litlar Ariönur. Ungar stúlkur og aðdáendur Ariönu Grande á leið á tónleikana, klæddar eins og hún og syngjandi lögin hennar. Þetta voru barna- og unglingatónleikar og það var mikil gleði hjá fólki sem var að njóta lífsins,
sagði Áslaug Fjóla þegar Vesturland ræddi við hana á þriðjudagsmorgun.
Hræðilegasta símtalið
Þau Ísak Snær sonur hennar og Kara Lind frænka fóru svo ein saman á tónleika Ariönu.
Áslaug Fjóla með yngstu dóttur sinni.
Ég og maðurinn minn fórum ekki með þeim vegna þess að við erum með ungabarn með okkur. Við fylgdum unglingunum bara að tónleikahöllinni og þau fóru inn. Síðan hringdi Ísak Snær í okkur um leið og tónleikunum lauk til að láta vita af þeim og að allt væri í lagi. Rétt á eftir hringdi hann svo aftur og það er hræðilegasta símtal sem ég hef nokkurn tímann fengið,
sagði Áslaug Fjóla. Í þessu símtali lýsti sonur hennar því að eitthvað hefði gerst inni á leikvangingum. Sprenging, reykur, blóð og skelfing. Ísak Snær var að láta vita að hann og Kara Lind væru komin út heil á húfi.
Áslaug Fjóla sagðist aldrei hefði getað látið sér detta í hug að börnin hennar ættu eftir að lenda í hryðjuverkaárás, fjölskyldan væri enn að átta sig á því sem í raun hefði gerst kvöldið áður.
Hugsuðu bara um að komast út
Ísak Snær lýsir atburðarásinni svo í samtali við Vesturland:
Frændsystkinin Ísak Snær og Kara Lind.
Tónleikarnir voru nýbúnir og kannski þrjár mínútur liðnar eftir síðasta lagið. Við Kara Lind höfðum ákveðið að doka aðeins við í salnum á útleiðinni á meðan mesti mannfjöldinn væri að fara út úr höllinni svo við lentum ekki í troðningi. Þá heyrðist hrikalegur hvellur. Það braust út skelfing og við reyndum að hlaupa að útganginum sem við héldum að væri nálægastur en samt fjarri staðnum þar sem sprengingin varð. Það voru allir grátandi og öskrandi að reyna að komast út úr salnum. Ég sá blóðslettur á gólfinu en engin lík eða slasað fólk. Við Kara Lind hugsuðum bara um að reyna að finna leið út. Okkur tókst að gera það á nokkru mínútum. Þegar ég var kominn út hringdi ég í pabba og mömmu. Pabbi, Ægir Þorleifsson, tók leigubíl og kom og sótti okkur og við fórum á hótelið.
Fjölskyldan átti svo flug heim til Íslands á miðvikudagsmorgun.