fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Eyjan

Bann við plastpokum – getum við lært af því?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. október 2014 23:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Kaliforníu hafa verið sett lög sem banna notkun plastpoka í verslunum. Bannið tekur gildi frá næsta ári. Áður hafa reyndar margar borgir í Kaliforníu bannað plastpoka.

Bannið þykir vera sigur fyrir umhverfisvernd og það hefur líka táknrænt gildi – þetta er aðeins upphafið, það þykir öruggt að fleiri ríki eiga eftir að fylgja í kjölfarið og að reynt verður að stemma stigu við útbreiðslu plasts í fleiri myndum.

Við vitum að plast er óþverri sem eyðist ekki í náttúrunni, en við notum samt plastpoka í ótæpilegu magni. Rogumst með fulla plastpoka úr Bónus og Krónunni. Skömmumst okkar frekar fyrir það. Fáar þjóðir jafn mikið undir umhverfisvernd og Íslendingar. Það er hryllilegt hvernig heimshöfin fyllast af plasti. Sjáið til dæmis þennan vef, Plastic Oceans.

Við færum létt með að minnka mikið notkun plastpota, plastflaskna og plastumbúða – ef vilji væri fyrir hendi. Það myndi einungis auka hróður okkar.

Í staðinn má benda á handhæga poka eins og þessa, Baggu. Þeir eru fisléttir, níðsterkir, taka ekkert pláss þegar þeir eru tómir en rúma mikið – og eru bara ferlega sniðugir. Fást til dæmis hjá Heilsu – og í Matarkistunni hjá Sigurveigu.

images-3

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025

Orðið á götunni: Stjórnmálamaður ársins á Íslandi og atvinnurekandi ársins 2025
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar

Hjálmar Sveinsson býður sig ekki fram til borgarstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina