fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

RÚV – fréttirnar, menningin, afþreyingin

Egill Helgason
Miðvikudaginn 18. desember 2013 12:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menn setja nú fram alls konar hugmyndir um hvernig Ríkisútvarpið eigi að vera. Það er reyndar ekki víst að þurfi að skilgreina það upp á nýtt. Um þetta er fjallað nokkuð nákvæmlega í lögum um Ríkisútvarpið sem voru sett í fyrra, þar segir að RÚV eigi að sinna fréttum, fræðslu, menningu og afþreyingu.

Þetta er það sem fólk starfar eftir í Efstaleiti – og ef dagskráin er skoðuð ber hún merki þessa. Í sjónvarpinu hefur hlutur íslensks efnis til dæmis farið mjög vaxandi.

Uppi eru sjónarmið um að þrengja hlutverkið verulega. Þau heyrast aðallega úr þremur áttum. Frá hægri mönnum sem eru heldur andsnúnir Ríkisútvarpi, frá vinstri sinnuðum menntamönnum og frá forsvarsmönnum einkarekinna fjölmiðla sem vilja veikja RÚV.

Þetta gengur út á að RÚV sinni fréttum og menningu – og þá helst þjóðmenningu og hámenningu. Aðrir eigi að sjá um afþreyinguna og ekki skuli til dæmis sýna frá viðburðum eins og heimsmeistarakeppni í fótbolta.

Í lögunum um Ríkisútvarpið segir að RÚV skuli „miðla afþreyingar- og menningarefni við hæfi fólks á öllum aldri“.

Hugmyndir um að þrengja hlutverkið ganga þvert á þetta. Allir landsmenn þurfa að borga nefskatt vegna Ríkisútvarpsins. Efnið þarf að vera fjölbreytt og hafa víða skírskotun. Í því sambandi má benda á að Evróvisjón er vinsælasta sjónvarpsefnið ár hvert. Þá, og þegar áramótaskaupið er sýnt, er mestöll þjóðin að horfa.

Og hvað varðar heimsmeistarakeppni í fótbolta, þá er það beinlínis stefna evrópskra sjónvarpsstöðva að slíkt efni skuli aðgengilegt fyrir allan almenningi með sem ódýrustum hætti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi