Í Kiljunni í kvöld tilkynnum um Bókmenntaverðlaun bóksalanna, en þau byggja á kosningu sem fer fram meðal starfsfólks bókabúða um allt land. Bækur eru tilnefndar í mörgum flokkum. Þau Kristján Freyr Halldórsson og Elín Björk Jóhannsdóttir koma í þáttinn og segja frá úrslitunum.
Við fjöllum við um Landbúnaðarsögu Íslands, mikið stórvirki sem er komið út í fjórum bindum. Við förum á Álftanes með öðrum höfundanna, Árna Daníel Júlíussyni, en þar eru dæmi um byggðamynstur sem hefur verið óbreytt frá miðöldum.
Við rýnum í bækur pólitíkusa sem koma út fyrir jólin – þeirra Össurar Skarphéðinssonar, Steingríms J. Sigfússonar og Guðna Ágústssonar.
Illugi Jökulsson segir frá hörmulegu sjóslysi sem varð við Viðey snemma á síðustu öld, en þar drukknaði fjöldi manna meðan Reykvíkingar fylgdust með. Frá þessu er sagt í bók hans Háski í hafi.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur: Grimmd eftir Stefán Mána og Lygi eftir Yrsu Sigurðardóttur.