Nýir handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson, verða gestir í Kiljunni í kvöld.
Við fjöllum líka um eina umtöluðustu bók síðustu ára, Skipulag alheimsins, eftir Stephen Hawking og Leonard Mlodinow. Bókin þykir útskýra einstaklega vel nýjustu kenningar í heimsfræðum, en einnig hefur vakið athygli það sem Hawking segir um guð í bókinni.
Við förum norður á Sauðárkrók og hittum útgefandann, rithöfundinn, jógakennarann og talnaspekinginn Benedikt Lafleur.
Páll Baldvin og Kolbrún fjalla um nýjustu Útkallsbókina eftir Óttar Sveinsson og Dauðann í Dumbshaf eftir Magnús Þór Hafsteinsson. Í síðarnefndu bókinni er rakin hin magnaða saga íshafsskiptalestanna sem sigldu framhjá Íslandi í stríðinu með hergögn og vistir handa Sovétmönnum. Stundum var það svo að Hvalfjörður var fullur af stórum skipum vegna þessa – en margir lentu í miklum hrakningum eða týndu lífi.
En Bragi lýsir yfir stuðningi við frambjóðanda í biskupskjöri.