
Kaup Gaums, félags í eigu Jóns Ásgeirs, á skíðaskála í eigu Baugs, félags í eigu Jóns Ásgeirs, voru fjármögnuð af Glitni, banka í eigu Jóns Ásgeirs.
Á þeim tíma skulduðu félög Jóns Ásgeirs og félög tengd honum Glitni tugi milljarða króna.
Fyrir utan peningamarkaðssjóðina sem þeir fengu að vaða í eins og enginn væri morgundagurinn.
Maður spyr enn og aftur: Hvenær verða matvörubúðir og aðrar verslanir þessara manna teknar upp í skuldir?
Þær voru einmitt seldar milli félaga Jóns Ásgeirs með svipuðum hætti.
Hér er svo ábending sem barst í morgun, um bann við að stunda viðskipti sem er lagt á fjárglæframenn í Svíþjóð og getur gilt frá þremur og upp í tíu ár:
„Näringsförbudet innebär att du inte får driva näringsverksamhet. Du får vidare inte vara t.ex. bolagsman i handelsbolag, ledamot i ett aktiebolags styrelse eller teckna firman i något bolag. Du får heller inte arbeta i någon närståendes verksamhet. Näringsförbud kan åläggas för en tid mellan tre och tio år.“