fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Samson í lestarstöð tækifæranna

Egill Helgason
Þriðjudaginn 28. júlí 2009 22:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er merkileg skýrsla, mat Fjármálaeftirlitsins á því hvort Samson, félag Björgólfsfeðga, væri hæft til að vera eigandi Landsbankans. Þessi „ákvörðun“ FME er frá því 3. febrúar, löngu eftir að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu ákveðið hverjir yrðu kaupendur Landsbankans – það hefði verið tilkynnt um haustið 2002.

En Fjármálaeftirlitið þurfti formsins vegna að samþykkja kaupendurna.

Þarna eru nokkur atriði sem eru athyglisverð.

Það er talað um fjárhagslegan styrkleika kaupendanna.

Það segir að ekki standi til að taka lán hjá LÍ eða tengdum félögum. (Síðar fannst vitaskuld frábær leið framhjá þessu með  „gagnkvæmri“ lánafyrirgreiðslu þeirra tveggja hópa sem keyptu ríkisbankana tvo á sama tíma!)

Og síðast en ekki síst, eitt veigamesta atriðið (bls. 8):

Þá hefur Samson lýst því  yfir að ekki séu áform um neinar breytingar á verkefnum Landsbankans, né breytingar á markmiðum bankans um eiginfjárhlutfall eða útlánavöxt.

Svo er þarna fjallað um Ingimar Ingimarsson, viðskiptafélagann sem ásakaði Björgólfa um svik á bruggaraárunum í Sankti Pétursborg. En við skulum ekki fara út í það.

Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins er hér.

akvordun.pdf

Í framhaldi er af þessu er hér hrikalega skemmtilegt viðtal við Björgólf yngri frá ágúst 2006, þá gerði Mogginn heilt aukablað um hann. Um þetta er fjallað í vefritinu Nei.

Tvö sítöt:

Með því að fara fram á kjölfestuhlut vorum við að kalla eftir ábyrgð. En vandi fylgir vegsemd hverri. Ég sé ekki betur en að með einkar góðum og öruggum rekstri bankans höfum við staðið undir þeirri ábyrgð. Rétt er að benda á að í nýlegri umsögn greiningardeildar alþjóðlega bankans Morgan Stanley er það talið Landsbankanum mjög til framdráttar að hafa okkur eins sterka inni í bankanum og raun ber vitni. Mér finnst það segja allt sem segja þarf og undirstrika að við höfðum rétt fyrir okkur.

Og:

Einhvern tíma talaði Björgólfur Thor Björgólfsson um að hann vildi að umhverfi sitt væri eins og lestarstöð tækifæranna. Þegar það er borið undir hann, þá dettur honum annað í hug – flugmóðurskip. Sem skýrist ef til vill af því að sjóndeildarhringurinn hefur stækkað. “Það er á stöðugri siglingu og dílar koma og fara,” segir hann.
Ef til vill nær líkingin yfir bílaelfurnar tvær á Park Lane við höfuðstöðvar Novators í London. Þannig vill Björgólfur Thor haga viðskiptum sínum: “Ég vil vera aðlaðandi fyrir óskilgreindu umhverfi þannig að tækifæri berist, hafa öflugt teymi til að greina þau og vinna úr þeim og fara síðan sjálfur inn með fjármögnunina. Ég vil skoða tækifæri alla daga
.”

serrit2-1.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Að loknum vetrarólympíuleikum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni