
Gjaldeyrisbraskið
Þetta gjaldeyrisbrask er algjört eitur fyrir landið. Engin viðskipti á gjaldeyrismarkaðinum á Íslandi, blómstrandi offshore markaður sem grefur undan krónunni. Tvöföld verðmyndun og enginn sem þorir að snerta á neinu hér á meðan.
Örfáir einstaklingar (í “ráðgjafastarfi”) halda þessum markaði á floti og fara líklega á eftirlaun í lok ársins (þegar þeir eru búnir að græða nóg á kostnað Seðlabankans). Þetta eru einstaklingar sem þekktu til og stukku í þennan bransa um leið og höftin voru sett á enda vissu þeir strax í hvað stefndi.
Eins er slæmt að útflytjendur skuli ekki skipta erlendum myntum sinum yfir í krónur. Eign í erlendum myntum í Seðlabankanum hefur aukist um 70 milljarða sem er nokkurnvegin verðmæti útflutningsins á sama tíma.
Það er einkennilegt og dapurt að þetta sé látið viðgangast. Ástandið mun ekkert skána á meðan þetta er í gangi. Ef Seðlabankinn reynir ekki að hafa control á hlutunum fyrs menn fóru í þessi gjaldeyrishöft þá verður að koma krónunni á flot eins fljótt og hægt er!!!
— — —
Engar eignir hafa verið frystar
Bankastarfsmenn hringdu ítrekað í fólk, t.d eldri borgara og plötuðu það til að setja örugga peninga sína sem voru inni á bókum inn í þessa sjóði og sögðu þá vera 100% örugga.
En Ísland er lítið land og þá sneru menn sér að innlánum í Hollandi og Bretlandi m.a., Landsbankinn með Icesave og Kaupþing með Edge, þarna var ævisparnaður fólks plataður út með loforðum um gífurlega vexti, og auðvitað trúði fólk þeim því Ísland var í huga umheimsins pottþétt land, eitt af ríkustu löndum í heimi.
Nú er bara komið í ljós að það voru glæpamenn sem áttu þessa banka, og þeir hreinlega stálu peningunum af bæði íslenskum viðskiptavinum sínum sem og þeim hollensku og bresku.
Það alvarlegasta af þessu er að þessir menn ganga lausir í dag, þeir ferðast til og frá landinu, sinna sínum viðskiptum eins og ekkert hafi í skorist, eyða þýfinu í að endubæta og byggja hallir sínar hér á landi, og það fyrir framan nefið á okkur og stjórnvöldum.
En ekkert er gert.
Engar eignir eða eigur hafa verið frystar eins og eðlilegt er í svona svikamálum.
Þvílíkt bananalýðveldi … það er ekki skrítið að við erum orðin að athlægi í augum umheimsins!
Ég bjóst ekki við að skammast mín fyrir að vera Íslendingur, það var það síðasta sem mér hefði dottið í hug.
Ef þeir sem stjórna í dag geta ekki séð um að ná þessum mönnum og eigum þeirra upp í skuldir, þá eiga þeir að hleypa að einhverjum sem geta það. Það er engin lausn að velta hundruða milljarða skuldum útrásarvíkinganna yfir á almenning….
— — —
Veljum íslenskt !!
Séríslenskt bændaþjóðfélag.
Séríslenskt verðlag.
Séríslenskt samkeppnisleysi.
Sjálfumglaðir íslenskir smákóngar !!
Séríslensk spilling.
Séríslensk kreppa.
Séríslensk ónýt króna.
Einangrum eyjuna !!
Séríslenskt skuldafangelsi.
Séríslensk þjóðlega heimska.
Séríslenskir stjórnmálamenn – alíslenskir aular.
Íslenskur heimalingsháttur – Já takk!
— — —
Landbúnaður og gjaldeyrir
Við rekstur og uppbyggingu í landbúnaði er notað ógrynni erlends gjaldeyris, í olíu á tæki, við innflutning allskonar búnaðar sem nota þarf í landbúnað – jafnvel heilu fjósin frá a-ö, húsin sjálf eru innflutt stálhús, allur búnaður til mjalta, svo má nefna fóður, lyf, rúlluplast og meira og minna allt klabbið sem þarf í þetta. Tugir milljarða á ári sem borgað er í erlendum gjaldeyri vegna landbúnaðar sem stundaður er hér. Ég er hissa á að bændaforystan komist upp með að halda því fram að við spörum gjaldeyri með landbúnaðinum.
P.S. gleymdi áburðinum (!) sem er stór liður. Egill, ætli upplýsingar um hvað við notum í gjaldeyri beint vegna landbúnaðarins séu ekki mjög á huldu, jafnvel ófáanlegar? Það væri eftir öðru.
— — —
Massíf umboðssvik?
Sæll Egill, mig langar að benda þér á nýja stöðu varðandi rannsókn sérstaks saksóknara á stýringu Landsbankans á fimm lífeyrissjóðum í hans vörslu.
Mér finnst eins og menn hafi ekki eygt kjarnann í því máli.
Ef það er rétt sem kom fram í Mogganum um daginn að fjárfestingar umfram heimildir og fölsun gagna þar um snúist um fjárfestingar í bréfum bankans sjálfs og tengdra aðila (Samson, Straumur) þá vaknar spurningin : eru þetta ekki massíf umboðssvik ?
Þetta mál er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara og verður fróðlegt að sjá hverjir verða ákærðir og þá fyrir hvað. Þessir fimm lífeyrissjóðir töpuðu, með aðstoð Landsbankans, tugum milljarða (og sjálfur Davíð Odsson 3-4 milljónum skv. því sem hann sagði sjálfur í viðtali á Skjá 1).
— — —
Finnur kemst ekki að
Sama hvað líður eignarhaldi bandarískra vogunarsjóða eða fjárfestingasjóða á íslenskum bönkum, þá tryggir slíkt eignarhald a.m.k. tvennt:
a) Bankinn verður rekinn með hagnaðarmarkmiði en ekki eftir stefnuskrá ríkisstjórna og vildarvina;
b) Þegar hann verður seldur mun Finnur Ingólfsson og sambærilegir krónís ekki fá hann upp í hendurnar.
Ef markmið sjóðanna er að kaupa þrotabúið til að hámarka verðmæti þá losna Íslendingar við óbeina ábyrgð á öllum gerðum skilanefnda. Maður hefði talið það kost.
Ég hef oft komið að viðskiptum þar sem vogunarsjóðir eru öðrumegin við borðið og hræðist ekki að fá þá í bankastarfsemi á íslandi.
Þjóðfélagslega mikilvægar eignir, t.d. fisk og jarðvarma á að koma í hendur íslensku eignaumsýslufélagi. Það mun ekki nokkurt ríki fordæma Ísland fyrir að gæta sinna hagsmuna hvað það varðar. Síðan á íslenska ríkið að láta þeim aðilum sem eiga aðkomu að þessu bankagjaldþroti eftir að hreinsa til eftir sig sjálfir. Hræðsla við erlenda kröfuhafa tröllríður öllu kerfinu á þessu landi. Í flestum tilfellum er um að ræða áhættufjárfesta sem tapað hafa miklum peningum.