
Þetta eru merkilegar fréttir af geggjuðum prentsmiðjukaupum Íslendinga í Bretlandi og viðskiptadílum kringum þau og lánum Seðlabankans til banka sem var kominn að því að hrynja.
Ein lítil saga í framhaldi af því.
Um daginn var ég í flugvél og sat við hliðina á þýskum skipamiðlara. Þegar ég sagðist vera Íslendingur fór hann að segja frá sérstæðum kynnum sínum af íslenskum bankamönnum.
Fyrirtæki hans sóttist eftir láni upp á sirka 20 milljónir evra. Til þeirra komu útsendarar frá íslenska bankanum Glitni.
Þeir voru mjög glaðbeittir. En það kom helst ekki til greina að lána 20 milljónir evra, sú upphæð var alltof lág, þeir vildu lána 50 milljónir evra.
Þjóðverjinn sagði að sér og félögum sínum hefði ekki litist á blikuna, þeir hefðu ákveðið að snúa sér til annarrar bankastofnunar. Þeir hefðu ekki séð svona bankamenn fyrr eða síðar.