fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Brjálæðisleg lán bankanna til fallandi eignarhaldsfélaga

Egill Helgason
Föstudaginn 12. júní 2009 12:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er síðasta árið fyrir hrun sem er lykiltími í rannsókninni.

Þá hafði lokast fyrir öll lán til íslenska fjármálakerfisins og bankarnir og stóru eignarhaldsfélögin fóru að grípa til alls kyns örþrifaráða.

Það er þarna sem eru framin myrkraverk – og hugsanlega afbrot.

Mogginn fjallar um þetta í dag, í ljósi ofboðslegra lána Glitnis til FL-Group. Það er líka athyglisvert í þessu ljósi hvernig peningamarkaðssjóðirnir voru notaðir, af fullkomnu skeytingarleysi við þær þúsundir Íslendinga sem voru hvattir til að leggja sparifé sitt þangað inn.

Í Morgunblaðinu segir:

„Þegar erlendir lánamarkaðir lokuðust fyrir íslensku fjárfestum seint á árinu 2007 og snemma árið 2008 lentu þeir í vandræðum með fjármögnun. Samtryggingarkerfið innan íslensku bankanna, þar sem stærstu fjárfestarnir voru aðaleigendur, leiddi til þess að bankarnir lentu með mörg félög í fanginu. Þeir fengu það verkefni að redda þessum félögum peningum.

Hluti af lausninni var að gefa út endalaust af skuldabréfum og láta peningamarkaðssjóði bankanna kaupa þau. Þannig, og með frekari lánveitingum, var líflínunni kastað til eigenda félaganna í þeirri von að markaðir myndu opnast aftur. Það átti að halda kerfinu á floti. Það var í þágu allra persóna og leikenda á íslenska fjármálamarkaðnum.

Þetta gerði það að verkum að bankarnir veitti einum eða tengdum aðilum risalán. Þetta gagnrýndi Finninn Kaarlo Jännäri í skýrslu þar sem hann lagði mat á lagaumhverfi og framkvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi. Ríkisstjórnin óskaði eftir skýrslunni í nóvember á síðasta ári.“

Gleymum því heldur ekki hvernig þeir notfærðu sér íslensku krónuna. Er það kannski ekki tilviljun að Glitnir sem var með stærstu peningamarkaðssjóðina tók varla þátt í því að veðja gegn krónunni – þar voru Kaupþingsmenn og eignarhaldsfélögin sem tengdust Kaupþingi fremst í flokki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki