
Ef Icesave verður fellt vegna andstöðu þingmanna innan VG, ja þá má líklega gera því skóna að ríkisstjórnin eigi ekki lengri lífdaga.
Reyndar er spurning hvað Sjálfstæðisflokkurinn gerir, greiðir hann atkvæði á móti eða situr ef til vill hjá? Í ljósi framgöngu hans í fyrri ríkisstjórn er kannski erfitt fyrir hann að vera á móti.
Ýmsir hagfræðingar stíga líka fram og segja að þetta verði að samþykkja, meðal annars Jón Steinsson sem skrifaði þessa athugasemd hér á vefinn í gær.
„Auðvitað á að leita samstöðu um þetta mál. Þetta er ömurlegt mál. En við getum ekki hlaupið frá skuldbindingum okkar og hegðað okkur eins og sjóræningjar. Það mun skaða okkur meira en fólk getur held ég ímyndað sér.
Þeir þingmenn sem greiða atkvæði gegn þessum samningi eru að leggja til að við gerumst sjóræningjar og einangrum okkur algjörlega frá umheiminum. Það mun enda með ósköpum.
Það voru fyrri ríkisstjórnir sem leyfðu þessum skuldbindingum að hrannast upp (og Seðlabankinn ýtti undir það með því að lækka bindiskyldu) og þjóðin sagði ekki neitt á meðan það gerðist. Þessi ríkisstjórn fær það óvinsæla verkefni að hreinsa til. Við megum ekki skjóta sendiboðann í þessu máli.“