
Seðlabankinn segir að skuldir Íslendinga séu 3100 milljarðar króna.
Hvað þurfum við að borga mikið af þessu?
Hvaða vaxtagreiðslur eru af þessu skuldafargani?
Standa hinar rýru þjóðartekjur sem hér verða á næstu árum undir þessu?
Hvaða lífskjör verða hérna við þessar aðstæður?
Maður finnur reiði og ráðleysi vaxa meðal almennings.
Nú um helgina verður mynduð ný ríkisstjórn. Á þeim tímamótum þarf þjóðin að fá almennileg svör.