
Bæði Anders Fogh Rasmussen og Fredrik Reinfeldt vilja stefna að því að þjóðir þeirra taki upp evru. Það má jafnvel búast við ákvörðun þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna í Danmörku síðar á þessu ári.
Norðmenn eru ekki á þeim buxunum með sinn gjaldmiðil eins og lesa má hérna. Það stendur reyndar líka að evran sé einn versti gjaldmiðill í heimi.
Jens Stoltenberg segir hins vegar að ekki komi til greina að Íslendingar fái að taka upp hina frábæru norsku krónu.
Við því var svosem ekki að búast heldur. Kristin Halvorsen fjármálaráðherra var líka búin að segja nei, bara ekki með jafn afgerandi hætti.
Stoltenberg virðist líka benda Íslendingum í átt að evrunni, eða þannig skil ég hann.
Á næstunni þurfa Íslendingar að gera upp við sig hvernig þeir vilja haga gjaldmiðilsmálum og peningastjórnun. Það væri kannski ágætt að krefja frambjóðendur um hugmyndir þeirra fyrir kosningar – vonum samt að það leysist ekki upp í pólitískt þvarg.
Því auðvitað á ekkert að ráða í þessu máli nema ískalt hagsmunamat.