
Framsóknarmenn þorðu greinilega ekki að gefa manni úr gamla flokkseigendafélaginu atkvæði sitt.
Framsóknarflokkur með Pál Magnússon í forystu hefði orðið fjarska óáhugaverður, framhald af sama gamla. Tap hans er mjög stórt.
En það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig Sigmundur Davíð spilar úr þessari stöðu. Hún er erfið, en í henni felast tækifæri.
Hann þarf að kalla nýtt fólk á vettvang, gera upp við spillinguna og finna gundvöll til að standa á – það má vel vera að hann sé að finna í gömlum hugsjónum framsóknarmanna.