
Fréttablaðið rekur mjög harðan áróður fyrir því að Ísland gangi í Evrópusambandið.
Annar ritstjóri blaðsins telur að Framsóknarflokkurinn „meldi sig að nýju til leiks“ með því að samþykkja aðildarviðræður að Evrópusambandinu.
Í leiðaranum lýsir hann nánast yfir stuðningi við Pál Magnússon, hinn evrópusinnaðasta formannsefnanna í flokknum?
En hver verður sérstaða Framsóknar með stóra evróputrúaða Samfylkingu við hlið sér?
Er flokkurinn ekki dæmdur til að vera – framvegis og áfram – lítill miðjuflokkur sem reynir að koma ár sinni vel fyrir borð í ríkisstjórnum?
Meðan Vinstri grænir hirða gamla framsóknarfylgið í sveitunum?
Væri ekki hreinlegra að sameina flokkinn einfaldlega Samfylkingunni? Eða hver er meiningarmunurinn milli þessara flokka sem báðir hafa verið í samstarfi við Sjálfstæðisflokk – og báðir hegðað sér ósköp svipað í því samstarfi?