
Vef-Þjóðviljinn segir að ekkert hafi gerst nema að þrír bankar hafi farið á hausinn og heimtar harðari löggæslu.
Er ekki nær að segja að allt það sem þetta vefrit hefur staðið fyrir og barist fyrir hafi hrunið til grunna?
Hvað er eftir af einkavæðingunni?
Eða þeirri hugmynd að þyrfti að losa um regluverkið í fjármálalífinu?
Og þeirri hugmynd að það væri samfélaginu til heilla að sumir fengju að veða ofsalega ríkir, molarnir myndu þá hrjóta niður til okkar hinna?
Og hver er staðan á sjávarauðlindinni sem var ráðstafað í hendur einkaaðila þvert á vilja meirihluta Íslendinga?
Já, og sú hugmynd að græðgi sé góð. Hvernig lítur hún út þegar tilreidd hefur verið stærsta skuldasúpa sem þekkst hefur?
Eða frjálshyggjan sjálf – finnst mönnum líklegt að hún muni eiga mikinn hjómgrunn á Íslandi – eða í veröldinni – næstu áratugina?
Ég veit að ýmsir frjálshyggjumenn munu svara því til að vandinn sé að frjálshyggjan hafi ekki verið nógu hrein. Henni hafi ekki verið fylgt í nógu tærri mynd.
En þetta er nákvæmlega það sem kommarnir sögðu eftir hrunið. Nefnilega að það hefði aldrei verið framfylgt alvöru kommúnisma.
Kannski mættu Vef-Þjóðviljamenn íhuga að líta í eigin barm, fara aðeins yfir hugmyndirnar, jafnvel henda sumu, í stað þess að heimta harðari lögregluaðgerðir? Meira að segja Alan Greenspan hefur farið að stunda smá sjálfsgagnrýni.
Má svo bæta við að samkvæmt þessu virðist Ísland vera orðið samheiti í heiminum fyrir lélega efnahagsstjórn.