
Sirkus, fylgirit Fréttablaðsins, birti í maí 2007 ítarlega úttekt á ríkustu Íslendingunum, nánar tiltekið þeim 25 ríkustu.
Allt voru þetta margfaldir milljarðamæringar á þeim tíma. Eignir þeirra voru sagðar metnar á 1390 milljarða króna.
Og svo fylgdu með viðbótarupplýsingar eins og hver ætti kraftmesta Hummerinn, að einn þeirra hafi safnað Range Roverum eins og aðrir DVD-diskum, og hvað margt þetta fólk væri fjarska hógvært en snjallt.
Þetta er allt mjög athyglisvert eins og sjá má með því að smella hér.
Svo er spurning hvað hefur orðið um alla milljarðana?