
Álbræðslur
Álverksmiðjurnar eru svikamyllur. Öll aðföng fyrir utan rafmagn og vinnuafl eru keypt frá móðurfyrirtækinu eða dótturfyrirtækjum þess og öll framleiðslan seld til baka. Með því að stýra aðkaupum og sölu er leikur einn að láta hagnaðinn af keðjunni koma fram þar sem það er hagstæðast fyrir móðurfyrirtækið.
Klassísk aðferð er að skuldsetja álverksmiðjurnar stórkostlega. Með stýringu á inn- og útstreymi fjármagns í gegnum viðskiptin við móðurfyrirtækið er séð til þess að verksmiðjurnar skorti stöðugt rekstrarfé sem þá þarf að taka að láni. Lánið er tekið hjá skúffufyrirtæki sem móðurfyrirtækið hefur skráð í einhverri skattaparadísinni. Í gegnum lánaviðskiptin er svo gróðinn af álvinnslunni fluttur á afvikinn stað.
— — —
Að bjögga
Sæll
Hvað þýðir það að “ bjögga“ einhvern? Að hlaupa frá skuldum sínum en skilja reikninginn eftir á borðinu hjá börnunum.
Sem svo verða að fara í uppvaskið?
Ég bara spyr.
Hugsanleg notkun: „Eigum við að bjögga þetta?“ „Eigum við að taka bjöggann á þetta?“
— — —
Sorgleg leið
Það sem fór úrskeiðis var að Ísland tók vitlausa leið fyrir nokkrum árum. Í stað þess reka sig alltaf með smávægilegum afgangi af viðskiptum við útlönd og geta þannig fjármagnað sjálft sínar virkjanir og framkvæmdir – var leiðin að reka sig með halla og safna skuldum. Því var enginn afgangur af erlendu kaplítali og taka þurfti erlend lán fyrir stórframkvæmdum. Eins og hver annar skuldari sem eyðir um efni fram verður að taka ný lán fyrir sínum “fjárfestingum”.
Munurinn á þessum leiðum þegar liðin eru 15-20 ár er svo rosalegur að maður tárfellir af sorg yfir heimskunni. Ef fyrri leiðin hefði verið valin værum við í frábærum málum. Hið gagnstæða er tilfellið.
Hvað þarf eiginlega til að fólk skilji þetta?
— — —
Er yfirmaður þinn siðblindur?
(Í stað “yfirmaður” má setja bankastjóri eða ráðherra)
2 stig fyrir hvert “já” svar , 1 stig fyrir hvert “kannski” eða “að hluta til” svar, 0 stig fyrir hvert “nei” svar
1. Telurðu skorta á sektarkennd eða iðrun yfirmannsins þegar hann skaðar aðra?
2. Forðast yfirmaður þinn að taka ábyrgð á gjörðum sínum?
3. Er sjálfsmynd yfirmannsins stórlega ofmetin?
4. Er yfirmaðurinn vel máli farinn og yfirborðslega hrífandi?
5. Er yfirmaðurinn tilfinningakaldur og skortir hluttekningu?
6. Er yfirmaðurinn sjúklega lyginn?
7. Er yfirmaðurinn með uppgerðaryfirborð?
8. Er yfirmaðurinn svindlari eða meistari í að ráðskast með fólk?
Ef yfirmaðurinn fær: 1 – 4 stig: Vertu svekktu r 5 – 7 stig: Vertu varkár 8 – 12 stig: Vertu hræddur 13 – 16 stig: Vertu skelfingu lostinn
— — —
Tíu einkenni siðblindra
Kíkið á bækur Roberts Hare ,,Without Conscience” og Martha Stout ,,The Sociopath Next Door”. Þar eru meðal annars þessi 10 einkenni:
1. Skortur á samvisku
2. Sök skellt á aðra
3. Mögnuð sjálfsmynd
4. Hvatvísi
5. Smeðjulegur sjarmi
6. Skortur á hluttekningu
7. Lýgur
8. Yfirborðskenndar tilfinningar
9. Léleg sjálfsstjórn
10. Ráðskast með fólk
Kannist þið við eitthvað af þessu?
— — —
Um psýkópata
Þarna gæti verið skýring á því hvernig menn hafa hegðað sér undanfarin ár. Psýkópötum er nefnilega alveg nákvæmlega sama hvort þeir meiða aðra eða koma þeim illa á nokkurn hátt, snertir þá ekki. Þeim er nákvæmlega sama um allar manneskjur í heiminum nema þá sjálfa og svo hafa þeir aldrei gert neitt af sér þegar þeir eru ásakaðir um eitthvað. Þeir koma algjörlega af fjöllum þegar bornar eru á þá ásakanir. Þá eru bara allir á móti manni, ha, heilu þjóðirnar meira að segja. Psykópati sem ég þekki lýgur öllu og hefur ekki hugmynd um hvenær er sagður sannleikur eða ekki. Þetta erstórhættulegt fólk, þetta er fólkið sem svo margir detta niður tröppurnar hjá, alveg af sjálfu sér og þetta eru þeir sem “selja ömmur” sínar alveg grimmt. Kannist þið við þetta…………….
— — —
Á kafi upp að öxlum
Frekjan er yfirgengileg. Því skyldi nokkur þjóð hafa vilja eða áhuga á að rétta okkur hjálparhönd?
Hér hafa stjórnvöld með fulltingi FME, Seðlabanka og allra bankanna sýnt það og sannað að þetta er ekkert annað en Mafía sem styður við bakið á sínum meðlimum!
Ekki vildi ég að Ísland lánaði krónu til lands þar sem stjórnvöld hafa með hjálp ofangreindra aðila, verið á kafi – uppað öxlum, í spillingu og vinavæðingu í öll helstu embætti landsins, með ríkislögreglu í vasanum og jafnvel potað mönnum úr rétta liðinu í hæstarétt landsins!.
Við erum ekkert annað en banalýðveldi og það er frændum okkar og nágrönnum alveg ljóst.
Held það sé tími til komin að sjálfstæðismönnum sé það ljóst líka og skammist sín. Þeir eru númer eitt, númer tvo og númer 3 – gerendur í þeim málum öllum sem við erum nú að fara að súpa seyðið af með mörg þúsund milljarða skuldsetningu þjóðarinnar.