
Stefán Snævarr veltir því fyrir sér hvort psýkópatar hafi tekið völdin á Íslandi síðustu ár.
Stefán segir endursegir einkenni psýkópata með svofelldum hætti:
„Psýkópatar séu belgfullir af valdagirni en kunni að leyna því enda einkar snjallir að villa á sér heimildir. Þeir séu ævinlega skrefi á undan venjulegu fólki. Þeir kunni á venjulega manninn en hann ekki á þá.
Mín spurning er: Getur verið að pólitík og viðskiptalíf á Íslandi hafi verið tekin yfir af psýkópötum á undanförnum árum? Ekki verður séð að útrásarherrarnir hafi nokkuð sem minni á samviskubit og það sama má segja um ýmsa þá sem vaðið hafa uppi í stjórnmálalífi landsins.“