fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Strandlíf

Egill Helgason
Miðvikudaginn 22. júlí 2009 12:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar ég var ungur var ég haldinn þrálátum misskilningi.

Ég trúði því að ef maður færi til útlanda ætti maður að fara á söfn, hljómleika og leiksýningar.

Þegar ég fór að ferðast að ráði fínkembdi ég söfn í helstu borgum Evrópu. Fannst ég vera að svíkjast um ef ég staldraði ekki við hvern grip og hverja mynd.

Ég uppgötvaði ekki fyrr en síðar að ég hefði átt að vera á einhverri fallegri strönd.

Ungur og fallegur á strönd.

Það var ekki fyrr en ég var kominn yfir þrítugt að ég uppgötvaði strandlífið.

Að á strönd er maður sannkallað náttúrubarn, fáklæddur í sjó, sandi og sól.

Því þeir sem liggja á strönd eru ekkert minni náttúruunnendur en þeir sem þvælast um háfjöll og heiðar.

Núorðið er varla hægt að draga mig á söfn. Það er helst að Kára takist það. Hann er áhugasamur um fornminjar.

En mér finnst að ég sé að sólunda lífi mínu ef ég dvel ekki við strönd að minnsta kosti nokkrar vikur á ári. Ég nýt þess að synda í sjó – dreg þó mörkin við sundiðkun við Íslandsstrendur.

En ég er ekki lengur ungur og fallegur.

Og svo til að árétta að öllu fer ekki endilega hrakandi í heiminum, þá er þessi frétt um að strendur í Evrópu hafi farið stórbatnandi síðustu árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið