fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Hverjir náðu að selja?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 22. júlí 2009 19:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Matthíasson skrifar þessa grein.

— — —

Margir sem áttu stóran hlut í bönkunum í árslok 2007 losuðu sig við hlutabréf sín fyrir fall bankanna. Með stórum hlut er átt við þá sem áttu meira en 500.000 að nafnvirði. Dæmi: Af 230 stórum hluthöfum í Landsbanka í árslok 2007 höfðu 109 losað sig út fyrir fall bankanna. Af 166 stórum í Kaupþingi voru 87 búnir að selja fyrir hrunið. Hluthafar í Kaupþingi tóku þó fyrst arðinn áður en selt var.

Því er spurt: Hverjir voru það sem seldu og hverjum var selt? Þetta skiptir verulegu málið því einhverjir bjuggu yfir innherjaupplýsingum um hina ömurlegu stöðu bankanna strax í ársbyrjun 2008 þó sífellt hafi verið  klifað á því útávið að allt væri í allra besta lagi í þessum besta fjármálaheimi allra fjármálaheima. Meiraðsegja stjórnarformaður fjármálaeftirlits, utanríkisráðherra, bankamálaráðherra, forseti og fleira fíneríslið tók þátt í PR-starfi vegna bankanna á árinu 2008. Þannig má alveg eins spyrja: Ef allt var í svona góðu lagi, hversvegna lá stærstu eigendum bankanna svona mikið á að selja hluti sína (það lætur nærri að helmingur stærstu eigenda hafi losað sig út frá ársbyrjun 2008 og fram að falli bankanna)?
Getur verið að hér hafi verið um að ræða sölur til eignarhaldsfélaga s.s. Imon þar sem stóreigendur gátu losað sig út, en eignarhaldsfélögin (sem voru kannski algerlega án allra eigna!) fengu lánað fyrir öllum kaupunum með veði í bréfunum sjálfum? Ef svo er þá er þetta klárlega refsiverð háttsemi.

Það er líka athyglisvert að „erlendir“ lögaðilar (t.d. eignarhaldsfélög  í eigu íslendinga), sem í flestum tilfellum höfðu keypt í bönkunum með láni frá bönkunum og veði í bréfunum sem keypt voru,  áttu í árslok 2008 33,6% í Glitni, 51,6% í Kaupþingi og 22,4% í Landsbankanum.  Þessir aðilar fengu greiddan arð rétt fyrir fall bankanna. Af þeim rúmlega 20 milljörðum sem þannig voru greiddar í arð til eigenda Glitnis og Kaupþings fóru 11,5 milljarðar beint í svarthol eignarhalds-og leynifélaga í Lúxemburg, Hollandi og á Jómfrúreyjum.

Það er mikilvægt við uppgjör á óreiðuskuldum bankanna verið komist til botns í því hverjir það voru sem náðu að selja og bjuggu yfir innherjaupplýsingum. Þá verður að skoða hvort við það tækifæri hafi verið stofnað til málamyndagerninga og óeðlilegar lánveitingar til eignarhaldsfélaga hafi haft þann einan tilgang að losa stöður fyrir stótreigendur. Einnig er eðlilegt að skoða hvað varð um þessa 11,6 milljarða sem greiddir voru í arð til  erlendra lögaðila rétt fyrir bankahrun.

Munum það að óeðlilegar lánveitingar bankanna rétt fyrir hrun lenda á almenningi og minni hluthöfum. Það eru þannig fórnarlömb í þessum glæp.

Það er einnig hægur vandi fyrir skattayfirvöld á Íslandi að fá upplýsingar um hverjir eru eigendur þessara eignarhaldsfélaga sem þannig hafa skotið sér undan greiðslu á tæplega 1.200.000.000 kr. fjármagnstekjuskatti með skráningu félaga sinna erlendis. Með nýjum upplýsingaskiptasamningum við lágskattaríki s.s. Guernsey, Bresku Jómfrúreyjar, Arúba og Hollensku Antillaeyjar er ekki lengur unnt að fela sig á bak við bankaleynd. Þessir samningar öðlast væntanlega gildi nú í haust. Þá má skoða eignarhald slíkra félaga 6 ár aftur í tímann og ríkin hafa 90 daga frest til að senda umbeðnar upplýsingar til fyrirspyrjenda. Við hljótum að treysta því að nú sé verið að undirbúa þessar fyrirspurnir hjá RSK og þá muni loks verða að hluta til flett ofan af svikamyllunni. Ágæt hugmynd væri að frysta eigur þeirra sem sæta rannsókn á meðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið