
Vilhjálmur Bjarnason talar um hvernig heilt bankakerfi á Íslandi var ræningjavætt.
Nú er skýrt komið fram að einkavæðing bankanna var glæpsamleg. Það er ekki hægt að hafa annað orð um hvernig bönkunum var komið í hendurnar á vildarvinum og klíkubræðrum stjórnmálamanna. Einkavæðingin byggðist á lygum og blekkingum.
Það er líka komið fram hvernig bankarnir lánuðu fyrir einkavæðingunni; þrátt fyrir fagurt tal um fjármagn utan úr heimi. Nú er komið upp á yfirborðið að Björgólfar leituðu til fjölda erlendra banka um þessa lánafyrirgreiðslu. Svarið var alls staðar nei. Þá komu þeir heim og fengu peninga í Búnaðarbankanum.
Eitt rifjast líka upp í viðbót. Björgólfar fengu afslátt af Landsbankanum eftir að gengið var frá kaupunum.
Upphæðin var 700 milljónir króna.
Afslátturinn var meðal annars vegna skulda DV sem þá hafði um nokkra hríð verið í eigu nokkurra félaga sem reyndu að breyta því í flokksmálgagn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það tókst ekki betur en að aðalhugmyndafræðingurinn á bak við þetta og ritstjórinn var Óli Björn Kárason, sem nú heldur úti vefnum AMX.