
Félag eins og Exista á ekki að hafa aðgang að neinu sem heitir „fjárhagsleg endurskipulagning“ nema það sé fyrst tekið af eigendum sínum.
Þeir hafa farið í alls konar æfingar til að reyna að halda félaginu á floti, og nú virðist enn ein í uppsiglingu.
Sparisjóðirnir á Íslandi sukku með Exista. Félagið skuldar hátt á annað hundrað milljarða í íslenskum bönkum. Alls staðar skilur það eftir sviðna jörð.
En telur sig víst eiga á móti kröfu vegna hins ógeðslega gjaldeyrisbrasks sem setti íslensku krónuna og þjóðarbúið á hliðina.
Í þetta sinn er talað um að Existabræður selji tryggingafélagið VÍS.
Björn Lárusson er hér með upprifjun á því hvernig VÍS var notað á tíma hinnar glæpsamlegu einkavæðingar íslensku bankanna.