
Gallinn við fréttalesara í sjónvarpi er að þeir eru flestir eins, pinnstífir lesa þeir fréttirnar af textavél eins og automata. Yfirleitt er frekar leiðinlegt að horfa á þetta látbragð.
Það verður ekki sagt um Walter Cronkite sem nú er látinn í hárri elli.
Hann var frábærlega mannlegur og eðlilegur, enda var hann elskaður og dáður í Bandaríkjunum.
Hér eru nokkur gæsahúðaraugnablik Cronkites.
Morðið á John F. Kennedy:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=2K8Q3cqGs7I&feature=related]
Og hér er hið fræga myndskeið þegar Cronkite lýsir því yfir að hann hafi misst trúna á hernaði Bandaríkjamanna í Vietnam:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=JdOb_183d1o&feature=fvw]
Og hér er umfjöllun Cronkites um fyrstu mennina á tunglinu, hið stórkostlega ævintýri, fyrir réttum fjörutíu árum:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=HwaA-hbvYF8&feature=channel]
Á gamals aldri gerði Cronkite þessa frægu fréttaskýringu um stríð Bandaríkjanna gegn fíkniefnum:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=XfZgzTpZFac]