
Verð á kaffibolla úr ítalskri kaffivél er á bilinu 370-390 á kaffihúsunum í miðborg Reykjavíkur, eða það hefur mér sýnst.
Þetta gerir um 2 evrur. Nú er aldeilis ódýrt fyrir útlendinga að koma til Íslands.
Kaffibolli á kaffihúsi á góðum stað í Frakklandi eða á Ítalíu kostar að minnsta kosti 3.50 evrur.
Það gerir um 650 krónur fyrir veslings Íslendinginn sem heimsækir þessa staði.