
Í bókabúð Máls & menningar við Laugaveginn slær sjálft hjarta þessarar verslunargötu. Þetta er eitt helsta menningarhús í bænum.
Það væri afar sorglegt ef þessi sögufræga og frábæra bókabúð þyrfti að hverfa úr þessu húsi.
Og það væri áfall fyrir Miðbæinn. Það mikla líf sem er á þessum hluta Laugavegarins er að miklu leyti bókabúðinni að þakka.
Og svo er þetta búð með mikla sögu eins og sýnt var í Kiljunni í vetur. Þarna voru Kristinn E. Andrésson, Sigfús Daðason, Magnús Torfi, Anna Einarsdóttir – æ, það getur ekki verið neitt vit í að þarna komi fatabúð, veitingahús eða skemmtistaður.
Ætli slík starfsemi myndi borga eigendum hússins betri og öruggari leigu?
Mál & menning er ekki ómerkara menningarhús í bænum en t.d. Listasafnið eða Þjóðleikhúsið, hvað þá hið ólánsama Tónlistarhús.