fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Tvö bréf um Brown

Egill Helgason
Fimmtudaginn 7. maí 2009 20:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér eru tvö bréf sem mér bárust í dag um Downingstrætisdónann, Gordon Brown, og dæmalaus ummæli hans í breska þinginu um Íslendinga.

— — —

„Ég las innskot þitt um ummæli Brown á breska þinginu varðandi fyrirspurn um innistæðureikning sem ekki hafði fengist greiddur. Þetta mál virðist vera mjög stórt mál á Bretlandi – enda um að ræða 6,5 milljón punda innistæðu krabbameinssjóðs breska sjúkrahússins Christie´s í Manchester. En það sem gleymdist í frétt Vísis var að þessa innistæða var í bankanum Kaupthing Singer & Friedlander. Minn skilningur er sá að breskir eftirlitsaðilar hafi borið ábyrgð á  Kaupthing Singer & Friedlander – ekki íslensk yfirvöld. Í fyrirspurnartímanum skellir Brown skuldinni á íslensk yfirvöld og segist vera að vinna með IMF í að tryggja endurgreiðslur frá  okkur Íslendingum. Þetta mál er funheitt í Bretlandi þar hafa 50 þús manns undiritað kröfu um að þessi innistæða verði greidd tilbaka til Krabbameinssjóðsins. Í breskum blöðum er talað um ÍSLENSKA BANKANN Kaupthing Singer & Friedlander og reiði Breta beinist að okkar yfirvöldum. Þetta er náttúrlega skelfilegt PR klúður ef að við látum Brown núna skella skuldinni af Kaupthing Singer & Friedlander á okkar herðar og raunar grafalvarlegt milliríkjamál ef að forsætisráðherra Breta fer með slíkar fleipur og breska þinginu.“

— — —

„Ummæli Gordon Brown eru einkar ósmekkleg í ljósi þess að sá velgerðarsjóður í Manchester sem ýtti umræðum af stað í breska þinginu var í viðskiptum hjá Singer & Friedlander bankanum (sem vissulega var í eigu Kaupþings) en sá banki starfaði samkvæmt leyfum og undir eftirliti FSA í Bretlandi, borgaði skatta í Bretlandi og er því á ábyrgð breska ríkisins og breska tryggingsjóðsins. Af þeim ástæðum hafa endurgreiðslur til velferðarsjóðsins ekkert með samskiptin við Ísland að gera, ekkert með íslenska tryggingasjóði að gera, ekkert með Icesave að gera og ekkert með viðræður Íslendinga og Breta að gera. Brown var að reyna að skýla sér og vangerð breskra stjórnvalda gagnvart þessum sjóði með því að blása í glóðir andúðar gegn Íslendingum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 klukkutímum
Tvö bréf um Brown

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann