
Gordon Brown er svo illa haldinn af valdhroka og frekju að hann kastar farsímum og tölvuprenturum í Downingstræti. Breskir kjósendur hafa upp til hópa skömm á þessum óuppdregna dóna og aðferðum hans.
Í þinginu í dag talaði hann svona til Íslendinga samkvæmt frásögn Vísis.
„Mikilvægast er að íslensk stjórnvöld borgi,“ sagði Brown. „Þessvegna erum við í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og önnur yfirvöld um hversu hratt Ísland mun borga til baka af því tjóni sem landið er ábyrgt fyrir.“
Ég veit ekki með ykkur, en ég kannast ekki við að hafa valdið Brown eða Bretum neinu tjóni.
Og ef Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn ætlar að láta Breta setja Íslendingum einhverja afarkosti – ja, þá höfum við ekkert við þá að tala.