fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Hvernig á að ráðstafa eignunum?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 6. maí 2009 09:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtæki eru unnvörpum að komast undir stjórn bankanna.

Margir hafa orðið til að benda á það sé vond leið að bankarnir standi í stórfelldum atvinnurekstri.

Í vetur var rætt um stofnun eignaumsýslufélags sem tæki við fyrirtækjum sem eru komin í þrot. Einhverjir vildu reyndar kalla þetta eignasölufélag – að það yrði hlutverk þess að selja fyrirtækin í fyllingu tímans.

Ekkert bólar enn á þessu eignaumsýslufélagi. Þvert á móti heyrast fréttir um að bankarnir séu komnir í bullandi samkeppnisrekstur á ýmsum sviðum.

Það verður forvitnilegt að sjá hvað stendur um þetta í nýjum stjórnarsáttmála. Ein skynsamlegasta leið sem hefur verið nefnd er að erlendir aðilar, sem eru hafnir yfir grun um vina- eða klíkutengsl, verði fengnir til að stjórna eignaumsýslufélaginu og ráðstafa verðmætum út úr því.

En svo er náttúrlega hugsanlegt að stjórnmálamennirnir vilji hafa þetta allt á sínu forræði – og að við snúum aftur til gamaldags fyrirgreiðslu- og skömmtunarkerfis.

(Eitt enn: Samkvæmt fréttum er ríkisstjórnin að heykjast á fyrningarleiðinni í sjávarútvegi. En hvað með þau sjávarútvegsfyrirtæki sem eru svo skuldsett að þau eru í raun komin á vonarvöl? Er ekki kvóti þeirra orðin eign bankakerfisins (og jafnvel erlendra kröfuhafa)? Hvernig verður honum úthlutað aftur? Eða á veita þessum fyrirtækjum skuldauppgjöf eins og LÍÚ hefur beðið um?)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann